Gámur fyrir málma fjarlægður
Gámur fyrir málma sem staðið hefur við Seljabót hefur verið fjarlægður vegna ítrekaðrar lélegrar umgengni og rangrar flokkunar.

Þrátt fyrir að gámurinn hafi eingöngu verið ætlaður fyrir málma hefur hann ítrekað verið notaður fyrir annan úrgang. Í vikunni mátti meðal annars finna þar timbur, dekk, almennan úrgang og fellihýsi.
Röng flokkun og léleg umgengni hefur haft í för með sér verulegan kostnað fyrir Grindavíkurbæ. Því er staðan orðin sú að ekki er talið forsvaranlegt að hafa gáminn áfram á svæðinu og hefur hann því verið fjarlægður.
Þau sem þurfa að losa sig við málma þurfa framvegis að fara með þá á móttökustöðvar Kölku í Reykjanesbæ eða Vogum.
Grindavíkurbær hvetur íbúa og aðra til að ganga vel um bæinn og koma úrgangi á viðeigandi móttökustaði.


