Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
9. júní 2026

Fyrstu Grind­vík­ing­arn­ir á Heið­urs­vegg íþrótt­anna

Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní kl. 11:00, verður tilkynnt hvaða einstaklingar verða fyrstir til að hljóta sess á Heiðursvegg íþróttanna í Grindavík við hátíðlega athöfn í Gjánni.

Heiðursveggnum er ætlað að heiðra einstaklinga sem hafa skarað fram úr í íþróttastarfi fyrir hönd Grindavíkur, varðveita sögu og arfleifð íþróttastarfs í bænum og varpa ljósi á fyrirmyndir fyrir börn og ungmenni.

Að verkefninu standa Grindavíkurbær, Ungmennafélag Grindavíkur, Golfklúbbur Grindavíkur og Hestamannafélagið Brimfaxi sem bera sameiginlega ábyrgð á þróun og varðveislu Heiðursveggjarins.

Við val á einstaklingum á Heiðursvegginn verður horft til framúrskarandi árangurs í íþróttum eða verulegs framlags til uppbyggingar og þróunar íþróttastarfs í Grindavík, jafnt innan vallar sem utan.

Markmiðið með Heiðursveggnum er einnig að halda á lofti sögu íþróttastarfs í Grindavík og minna á þann sterka grunn sem samfélagið hefur byggt upp í gegnum árin með eldmóði, samstöðu og sjálfboðastarfi.

Athöfnin fer fram í Gjánni kl. 11:00 á 17. júní og er athöfnin öllum opin.