Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
22. september 2026

Fyrsti hluti end­ur­skoð­aðs áhættu­mats fyr­ir Grinda­vík

Öryggi í Grindavík talið sambærilegt öðrum byggðarlögum sem búa við langvarandi náttúruvá.

Niðurstaða fyrsta hluta endurskoðaðs áhættumats vegna öryggis fólks í Grindavík liggur nú fyrir. Meginniðurstaðan er sú að aðstæður í Grindavík séu sambærilegar aðstæðum í öðrum íslenskum byggðarlögum sem búa við langvarandi náttúruvá, svo sem ofanflóð, sjávarflóð eða jarðskjálfta. Munurinn er sá að í Grindavík er váin yfirvofandi allan sólarhringinn, allt árið um kring. Til þess að öryggi fólks sem dvelur eða starfar í Grindavík verði ekki síðra en í öðrum sambærilegum byggðarlögum þurfa þær aðgerðir sem taldar eru forsendur öryggis, samfellds skólahalds og öruggs húsnæðis að haldast virkar.

Almennur viðbúnaður og varnir í Grindavík eru taldar sambærilegar við önnur byggðarlög sem búa við ofanflóðahættu. Öflug vöktun Veðurstofu Íslands er í gangi og virk viðvörunar- og viðbragðsferli eru hjá stofnuninni og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Viðbúnaður viðbragðsaðila hefur verið aukinn, rýmingaráætlanir liggja fyrir og hraunvarnargarðar hafa verið styrktir eftir eldgosið í júlí 2025. Auk þess hefur verið ráðist í umfangsmiklar sprunguviðgerðir, jarðkönnun og lokun hættusvæða, ásamt stuðningi við íbúa sem búa við þessa langvarandi óvissu, ekki síst börn.

Niðurstaðan er uppfærsla á fyrra áhættumati frá 31. maí 2026 og mun hafa áhrif á næstu skref í endurreisn Grindavíkurbæjar. Aðgerðir sem taldar eru nauðsynlegar en ekki á færi Grindvíkinga eða viðbragðsaðila einna að afgreiða verða unnar áfram í samstarfi bæjarstjórnar Grindavíkur og samráðshóps ráðuneyta. Endurskoðað áhættumat var kynnt fyrir ríkisstjórn á fundi hennar þriðjudaginn 22. september 2026.

Þessi áfangi er undanfari heildstæðs áhættumats sem áætlað er að ljúki í nóvember 2026, þar sem núverandi niðurstöður verða rýndar og matið uppfært og víkkað. Áhættumatið er lifandi gagn sem tekur breytingum eftir því sem aðstæður breytast og verður áfram í umsjá Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra svo lengi sem óvissustig almannavarna er í gildi.

Endurskoðunin byggir á tillögum Alþjóðabankans og Grindavíkurnefndar og á aðferðafræði sem kynnt var á vinnustofu Alþjóðabankans í júlí 2026. Þar er í fyrsta sinn hér á landi beitt þátttökunálgun við mat á áhættuþoli, sem byggir jöfnum höndum á vísindalegum gögnum, sérfræðiþekkingu og á þekkingu, reynslu og staðkunnáttu Grindvíkinga sjálfra.