Fisktækniskólinn flytur heim til Grindavíkur
Fisktækniskóli Íslands mun á ný taka til starfa í Grindavík frá og með haustönn 2026 þegar skólinn flytur starfsemi sína í Hópsskóla í Grindavík.

Samkomulag hefur náðst um leigu á skólahúsnæði í eigu Grindavíkurbæjar eftir tvö ár í Suðurnesjabæ.
Fisktækniskólinn gegnir mikilvægu hlutverki í íslenskum sjávarútvegi og hefur verið nátengdur Grindavík frá upphafi. Flutningurinn markar því mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu bæjarins og styrkir um leið mennta- og atvinnulíf á svæðinu.
Fjölbreytt nám með sterka tengingu við atvinnulífið
Nýverið útskrifaði skólinn 45 nemendur og áfram verður boðið upp á fjölbreytt og hagnýtt nám á framhaldsskólastigi sem tengist sjávarútvegi. Námið byggir á tveggja ára grunnnámi þar sem skipt er á milli skólanáms og starfsnáms á vinnustöðum, meðal annars í sjómennsku, fiskvinnslu og fiskeldi.
Einnig verður áfram boðið upp á framhaldsnám í fiskeldi ásamt fjölbreyttum námskeiðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki í sjávarútvegi og tengdum greinum.
Flutningur Fisktækniskólans heim til Grindavíkur er jákvætt skref fyrir samfélagið allt og enn eitt merkið um aukna starfsemi og uppbyggingu í bænum.


