Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
8. september 2026

Eng­ar nýj­ar sprung­ur í Grinda­vík

Fréttir um faldar sprungur undir Grindavík fjalla um sögulega vísindarannsókn á gögnum sem safnað var á árunum 2023–2025.

Nýlega birtist vísindagrein í tímaritinu Geophysical Research Letters þar sem vísindamenn við Háskóla Íslands og samstarfsstofnanir lýsa notkun segulmælinga til að finna faldar sprungur undir yfirborði í Grindavík. Þessi umfjöllun getur valdið þeim misskilningi að verið sé að finna nýjar sprungur í bænum í dag, sem er rangt.

Hér er ekki um nýjar sprungur eða nýjar hættur að ræða. Grindavíkurbær hefur unnið ötullega og skipulega eftir nákvæmlega þessum niðurstöðum síðan árið 2024 til að tryggja öryggi og endurreisa innviði bæjarins.

Rannsóknin sýnir sögulegt ástand en ekki nýjar breytingar

Sú gagnasöfnun og mælingar sem fjallað er um í vísindagreininni fóru fram á tímabilinu 2023 til 2025. Hér er verið að birta niðurstöður tveggja ára fræðilegs starfs sem unnið var í samstarfi Háskóla Íslands, ÍSOR, EFLU og Veðurstofu Íslands á meðan jarðskorpuhreyfingarnar voru yfirstandandi.

Gögnin hafa verið nýtt til sprunguviðgerða allan tímann

Niðurstöður þessara segulmælinga lágu fyrir í rauntíma á árunum 2024 og 2025. Grindavíkurbær, Vegagerðin og Almannavarnir nýttu þessar nákvæmu mælingar strax til að staðsetja, grafa upp, fylla í og girða af hættusvæði. Þessar upplýsingar eru því vel þekktar og fyllilega samþættar í enduruppbyggingaráætlanir bæjarins.

Túngata og íþróttavöllurinn eru þegar afgreidd mál

Sérstök dæmi sem nefnd eru í fréttinni, eins og faldar sprungur undir Túngötu og við knattspyrnuvöllinn, voru rannsökuð með jarðkönnunarskurðum og staðfest þegar á árinu 2024. Gengið hefur verið frá þessum svæðum með viðeigandi hætti, sprungur fylltar með faglegum jarðtæknilausnum og yfirborð tryggt.

Engin marktæk hreyfing innan bæjarmarkanna síðan í janúar 2024

Mæligögn staðfesta að meginhluti allrar jarðskorpuaflögunar og sprungumyndunar í Grindavík átti sér stað í tveimur stórum atburðum (10. nóvember 2023 og 14. janúar 2024). Ekkert bendir til þess að marktækar eða hættulegar hreyfingar hafi átt sér stað innan þéttbýlisins síðan þá.

Öryggiseftirlit er í hæsta gæðaflokki

Öll þekkt sprungusvæði innan bæjarins eru tryggilega afgirt og merkt. Slökkvilið Grindavíkur fer um bæinn u.þ.b. átta sinnum á sólarhring til að vaka yfir girðingum og tryggja að öryggisráðstafanir séu virkar og óskaddaðar.