9. nóvember 2026
Endurkaupaáætlun Þórkötlu kynnt á íbúafundum
Forsætisráðuneytið og Fasteignafélagið Þórkatla hf. bjóða Grindvíkingum til kynningarfundar miðvikudaginn 11. nóvember kl. 17:00 í Gjánni í Grindavík.

Á fundinum verður endurkaupaáætlun Þórkötlu kynnt og farið yfir helstu atriði hennar. Fundargestum gefst jafnframt tækifæri til að bera fram spurningar og taka þátt í umræðum.
Fundinum verður einnig streymt fyrir þau sem ekki eiga heimangengt.


