Elínborg ráðin forstöðumaður frístundamála
Elínborg Ingvarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður frístundamála hjá Grindavíkurbæ.

Um er að ræða nýtt starf þar sem megináhersla verður lögð á starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Þrumunnar og uppbyggingu frístundastarfs fyrir börn og ungmenni í Grindavík.
Elínborgu þekkja Grindvíkingar vel enda er hún uppalin í Grindavík og hefur um árabil starfað með börnum og ungmennum í bænum. Hún hefur síðustu ár gegnt starfi forstöðumanns Þrumunnar og frá haustinu 2025 hefur hún einnig starfað sem tómstunda- og forvarnafulltrúi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Í nýju starfi mun Elínborg hafa umsjón með daglegum rekstri og starfsemi Þrumunnar, skipuleggja viðburði og félagsstarf og vinna að því að skapa fjölbreytt og spennandi tækifæri fyrir börn og ungmenni til samveru og þátttöku. Sem fyrr verður sérstök áhersla lögð á að starfsemin taki mið af áhuga og þörfum þeirra sem hana sækja.
Náið samstarf við Grunnskóla Grindavíkur verður mikilvægur þáttur í starfinu, m.a. við skipulag félagslífs nemenda og frístundastarfs utan skólatíma. Elínborg mun jafnframt hafa umsjón með starfi nemendaráðs og ungmennaráðs Grindavíkurbæjar og stuðla að því að börn og ungmenni hafi raunveruleg áhrif á mótun og framkvæmd starfsins.
Með ráðningunni vill Grindavíkurbær styrkja starfsemi Þrumunnar og leggja góðan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu félags- og frístundastarfs í bænum.
Grindavíkurbær óskar Elínborgu velfarnaðar í nýju starfi.


