Dagskrá sjómannadagshelgarinnar í Grindavík
Sjómannadeginum verður að vanda fagnað í Grindavík. Boðið verður upp á fjölskylduvæna dagskrá, samveru og viðburði. Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur

FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ
21:00 Haffi Önna á Fish House
Haffi snýr heim til Grindavíkur og heldur notalega tónleika á Fish House. Frumsamið efni, kassagítar og ljúf stemning í góðum félagsskap.
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ
11:00 Zumba Gold í Kvikunni
Jeanette leiðir hressan og skemmtilegan Zumba Gold tíma í KvikunnI í boði Krabbameinsfélags Suðurnesja. Tilvalið fyrir öll sem vilja byrja daginn á góðri hreyfingu og gleði
12:00-16:00 Bylgjulestin við Kvikuna
Bylgjan sendir út beint frá Grindavík. Líf og fjör, tónlist og stemning í hjarta bæjarins.
12:00-18:00 Sundlaugin opin
Sundlaug Grindavíkur verður opin og aðgangur ókeypis yfir daginn. Tilvalið að njóta góðrar stundar með fjölskyldu og vinum.
12:00-17:00 Loforð í Kvikunni
Ljósmyndasýning Grindvíkingsins Láru Lindar Jakobsdóttur þar sem náttúra Grindavíkur fær að njóta sín í fallegum og persónulegum verkum.
12:30-14:00 Sýning á Ferrari bílum við Kvikuna
Nokkrir af glæsilegustu Ferrari-bílum landsins verða til sýnis við Kvikuna. Einstakt tækifæri fyrir bílaáhugafólk á öllum aldri.
13:00-17:00 Klifurturn við Kvikuna
Við setjum upp hæsta klifurturn landsins. Hversu hátt kemst þú?
13:00-15:00 Mótorhjólaakstur Grindjána
Grindjánar mæta á svæðið og bjóða gestum að upplifa akstur á glæsilegum mótorhjólum.
13:30-15:30 Götuboltamót Stinningskalda
Einn vinsælasti dagskrárliður sjómannadagshelgarinnar síðustu ár. Skemmtun fyrir alla aldurshópa. Mótið er öllum opin og skráning stendur yfir.
15:30-16:30 Sápurennibraut í Bröttubrekku
Slökkvilið Grindavíkur býður upp á risa sápurennibraut í Bröttubrekku. Hversu hratt þorir þú að fara?
16:30-18:00 Sundlaugarpartý í sundlauginni
Ungmennaráð Grindavíkur býður í partý í sundlauginni með DJ og krapi. Fullkomin leið til að kæla sig niður eftir daginn.
16:00-18:00 Bakkalábandið og gestir á Bryggjunni
Vísissystkinin í Bakkalábandinu flytja gömlu góðu lögin í bland við nýr á Bryggjunni. Notaleg tónlist og sannkölluð sjómannadagsstemning.
18:00-21:00 BryggjuPollarnir og Arney á Bryggjunni
BryggjuPollarnir og Arney bjóða upp á létta og skemmtilega stemmingu við sjávarsíðuna.
22:00-01:00 RIP í Kvikunni
Unglingahljómsveitin RIP stígur á svið ásamt gestasöngvurum og heldur uppi stórdansleik fram á nótt.
SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ
9:00 Mustad opið texasmót á Húsatóftavelli
Skemmtilegt golfmót á einum glæsilegasta golfvelli landsins.
13:00 Sjómannamessa í Grindavíkurkirkju
Hátíðleg sjómannadagsmessa biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Elínborgu Gísladóttur. Kór Grindavíkurkirkju leiðir söng undir stjórn Kristjáns Hrannars organista og Gissur Páll Gissurarson syngur einsöng. Að lokinni messu verða sjómenn heiðraðir fyrir mikilvægt framlag sitt til samfélagsins með störfum sínum á hafi úti
14:30 Blómsveigur lagður að Von
Að lokinni messu verður lagður verður blómsveigur til minningar um týnda og drukknaða sjómenn að minnisvarðanum Von.
12:00-17:00 Sundlaugin opin
Sundlaug Grindavíkur verður opin og aðgangur ókeypis yfir daginn. Tilvalið að njóta góðrar stundar með fjölskyldu og vinum.
13:00-17:00 Loforð í Kvikunni
Ljósmyndasýning Grindvíkingsins Láru Lindar Jakobsdóttur þar sem náttúra Grindavíkur fær að njóta sín í fallegum og persónulegum verkum.
13:00-14:30 Götuboltamót ungmennaráðs
Nú fá ungmenni tækifæri til að taka þátt í götuboltamótinu vinsæla. Þátttökuverðlaun og vegleg verðlaun fyrir efstu sætin.
13:00-17:00 Hoppukastalar og leiktæki við Kvikuna
Frítt verður í hoppukastala, hringekju og teygjuhopp við Kvikuna allan daginn.
14:30-15:30 Kraftaþrautir fyrir krakka
Krakkar fá tækifæri til að reyna á kraftana í skemmtilegum þrautum neðan við Kvikuna.
14:30-16:00 Börnum boðið á hestbak
Arctic Horses mæta með hestana og bjóða yngstu gestunum á hestbak við Kvikuna.
14:30-16:30 Sjómannadagskaffi í Kvikunni
Útgerðarfyrirtæki, Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Grindavíkurbær bjóða upp á kaffiveitingar í tilefni dagsins
15:00 Gunni og Felix
Gunni og Felix bjóða upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
15:30 Sjómannaþrautir í umsjón Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar
Keppt verður í koddaslagur, flekahlaupi og kararóðri. Verðlaunin hafa aldrei verið veglegri. Nú reynir á sjómanninn í þér!
16:00 BMX brós
Kraftmikil sýning með mögnuðum trikkum, hraða og dúndrandi stemningu.


