Dagmóðir tekin til starfa í Grindavík
Gréta Dögg Hjálmarsdóttir hefur hafið störf sem dagmóðir í Grindavík með fjögur börn í sinni umsjá.

Um er að ræða ánægjuleg tíðindi fyrir samfélagið og mikilvægt skref í átt að aukinni þjónustu fyrir yngstu íbúa bæjarins.
Starfsemin fer fram í húsnæði leikskólans Lautar en þar hefur engin starfsemi verið síðan Grindavíkurbær var rýmdur þann 10. nóvember 2023. Það vekur því sérstaka gleðitilfinningu að sjá líf færast í húsið og heyra barnahlátur óma um gangana á ný.
Hlýlegt og notalegt andrúmsloft mætir foreldrum og börnum í Laut þessa dagana þar sem lögð er áhersla á öryggi, leik og góðar stundir saman.
Á dögunum kíktu börnin meðal annars í fjárhúsin í Vík þar sem sauðburður stendur nú sem hæst og vakti heimsóknin mikla lukku hjá hópnum.
Gréta stefnir að því að vera í Laut fram á haust þegar nýr samrekinn leik- og grunnskóli tekur til starfa í Grindavík.


