Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
8. maí 2026

Bæj­ar­stjórn­ar­fund­ur 12. maí

Boðað hefur verið til fundar í bæjarstjórn Grindavíkur þriðjudaginn 12. maí. Fundurinn hefst kl. 14:00 í fundarsal bæjarstjórnar og er opinn almenningi.

Dagskrá:

Almenn mál

1. 2604032 - Ársuppgjör 2025 - Grindavíkurbær og stofnanir

Endurskoðendur bæjarins koma á fundinn og kynna endurskoðunarskýrslu og helstu stærðir ársreiknings.

Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2025 er lagður fram til síðari umræðu.

2. 2510007 - Aðalskipulagsbreyting vegna vegaöryggis á Norðurljósavegi og Grindavíkurvegi

Lögð fram uppfærð tillaga um óverulega aðalskipulagsbreytingu til að auka umferðaröryggi á Norðurljósavegi og við gatnamót Norðurljósavegar og Grindavíkurvegar.

Fulltrúar Grindavíkurbæjar og skipulagsráðgjafi hafa farið yfir umsagnir og fundað með Skipulagsstofnun. Á grundvelli framkominna ábendinga hefur skipulagstillagan verið uppfærð. Helsta breyting frá fyrri tillögu er að stærð VÞ9 svæðis hefur verið breytt til samræmis við legu varnargarðs sem liggur yfir hluta svæðisins.

Málið verður tekið fyrir í innviðanefnd 12. maí, fyrir fund bæjarstjórnar, og er gert ráð fyrir að nefndin mæli með því að bæjarstjórn afgreiði aðalskipulagið.

3. 2601032 - Orkuvinnsla í Eldvörpum - Umsókn um skipulagsbreytingar

Umsagnir við skipulagslýsingu og vinnslutillaga að aðalskipulagsbreytingu og deiliskipulagi lagðar fram.

4. 2604019 - Barnaverndarþjónusta - Samningur við leiðandi sveitarfélag

Samningur milli Reykjanesbæjar og Grindavíkurbæjar um barnaverndarþjónustu lagður fram til samykktar og afgreiðslu. Fela þarf bæjarstjóra að undirrita. Breytingar á samþykktum sveitarfélagsins lagðar fram undir öðrum dagskrárlið.

5. 2508017 - Samþykkt um breytingu á Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar nr. 530-2022

Breytingar á samþykkt sveitarfélagsins um stjórn og fundarsköp lögð fyrir bæjarstjórn til annarrar umræðu.

6. 2603050 - Starfsemi á frístunda- og menningarsviði haustið 2026

Taka þarf ákvörðun um umfang starfsemi á frístunda- og menningarsviði haustið 2026.

7. 2604049 - Reglur um frístundastyrki

Drög að reglum um frístundastyrki lögð fram. Bæjarráð hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti.

8. 2604046 - Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða

Samtök sjávarútvegssveitarfélaga hafa sent alþingi umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimildir).

Fundargerðir til kynningar

9. 2605001F - Bæjarráð Grindavíkur - 1710

Fundargerðin er lögð fram til kynningar

10. 2604008F - Samfélagsnefnd - 12

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

11. 2605002F - Almannavarnanefnd Grindavíkur - 82

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

12. 2602004 - Fundargerðir 2026 - Stjórn sambands íslenskra sveitarfélaga

Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 17.04.2026 er lögð fram til kynningar.

13. 2602011 - Fundargerðir - Heilbrigðisnefnd Suðurnesja 2026

Fundargerð 324. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja dags. 06.05.2026 er lögð fram til kynningar.

14. 2601051 - Fundargerðir stjórnar Reykjanes jarðvangs 2026

Fundargerð 95. fundar stjórnar Reykjanes jarðvangs dags. 20.04.2026 er lögð fram til kynningar.