Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
22. maí 2026

Aug­lýst eft­ir starfs­fólki í íþrótta­mann­virki

Grindavíkurbær auglýsir eftir öflugu og jákvæðu starfsfólki til starfa í íþróttamannvirkjum bæjarins.

Á ráðningarvef Grindavíkurbæjar má finna auglýsingu frá íþróttamannvirkjum Grindavíkurbæjar eftir öflugu og þjónustulunduðu starfsfólki í störf sundlaugarvarða. Um er að ræða fjögur störf í vaktavinnu, og er starfshlutfall allt að 80%. Gert ráð fyrir ráðningu frá 1. ágúst 2026.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og geta staðist þolpróf/hæfnispróf sundlaugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum.

Við leitum að starfsfólki sem getur unnið vel í síbreytilegu umhverfi og hefur mikla og ríka öryggisvitund. Mikilvægt er að starfsfólk hafi hag heildarinnar að leiðarljósi og vilja til að taka þátt í næstu skrefum í endurreisn bæjarins.

Verkefni

  • Öryggisgæsla við sundlaug og sundlaugarsvæði
  • Klefavarsla fyrir íþróttahús og sundlaug
  • Almenn þrif
  • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini og notendur íþróttahúss/sundlaugar
  • Vinna á kappleikjum og öðrum viðburðum
  • Önnur tilfallandi verkefni við íþróttamannvirki

Hæfnikröfur

  • Mikil öryggis vitund
  • Uppbyggileg og árangursrík samskiptahæfni
  • Vaxtarhugarfar og lausnamiðuð nálgun
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp
  • Góður liðsmaður sem hefur hag heildarinnar að leiðarljósi
  • Ábyrgðarkennd og jákvætt viðmót
  • Góð íslenskukunnátta, enskukunnátta æskileg
  • Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
  • Hafa náð 20 ára aldri

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Öllum umsóknum skal fylgja greinargóð ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Tekið er á móti umsóknum í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Árni Ólafsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 420-1100 og í netfanginu joi@grindavik.is.

Umsækjendur um stöður sundlaugavarða þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.

Við hvetjum öll áhugasöm til að sækja um, sérstaklega þau sem hafa áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í Grindavík.

Umsóknarfrestur er til 7. júní.