Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
25. mars 2026

App­el­sínu­gul veð­ur­við­vörun og óvissa í Grinda­vík

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna slæmrar veðurspár. Gert er ráð fyrir hríðarveðri slæmu skyggni og snjókomu.

Veðurstofan hefur gefið út gula og svo appelsínugula viðvörun fyrir Reykjanes vegna slæmrar veðurspár frá kl 05-13 á morgun, 26. mars 2026. Gert er ráð fyrir hríðarveðri slæmu skyggni og snjókomu, einkum á Reykjanesi með tilheyrandi ófærð sem getur fylgt. Eftir það verður slydda og í kjölfarið rigning en veður gengur niður eftir hádegið á morgun.

Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast náið með veður- og færð á vef Vegagerðarinnar umferdin.is og á vef Veðurstofu Íslands vedur.is áður en lagt er af stað og gefa sér ríflegan tíma í ferðalög. Eins eru farþegar á leið til Keflavíkurflugvallar beðnir um að fylgjast með flugáætlun flugfélaganna á vefsíðu þeirra.  

Foreldrar eru hvattir til að fylgja börnum sínum í skóla og leikskóla.

Vanbúnir bílar eiga ekki að fara af stað

Tryggja þarf að ökutæki séu vel útbúin vetrarhjólbörðum, nægu eldsneyti og tilbúnir í vetrarfærð á vegum á svæðinu og ekki leggja af stað af óþörfu.

Óvissa vegna jarðhræringa við Grindavík

Áframhaldandi óvissa með landris og jarðhræringar halda áfram á svæðinu í kringum Grindavík og Svartsengi.  

Viðbragðsaðilar funduðu í morgun til að meta aðstæður í Grindavík sökum veðurs og verður viðbragð aukið meðan óvissa með veður er til staðar. Vakt slökkviliðs verður til staðar ásamt björgunarsveit og þá hefur verður aðgerðastjórn lögreglu virkjuð í fyrramálið.

Þar sem enn ríkir óvissa með jarðhræringar og landris mælist enn undir Svartsengi með mögulegri eldgosshættu, er almenningi, ferðamönnum og íbúum svæðisins ráðlagt  til að kynna sér vel aðstæður og að það gæti komið til þess að flóttaleiðir frá bænum lokist með stuttum fyrirvara.

Fyrirtækjaeigendur í Grindavík eru einnig beðnir um að hafa í huga að fresta komu starfsfólks þangað til að veður gengur niður og færð sé í lagi.

Fólk er hvatt til að fylgjast með tilkynningum frá  Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni og Lögreglunni á þeirra miðlum. 

Snjóruðningstæki verða til taks í Grindavík í nótt og flóttaleiðum verður haldið opnum eftir því sem aðstæður leyfa.