Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
22. apríl 2026

Álykt­un al­menns íbúa­fundar um fram­tíð Grinda­vík­ur

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á íbúafundi í Grindavík 22. apríl 2026.

Almennur íbúafundur í Grindavík þakkar landsmönnum og stjórnvöldum mikilvægan stuðning á erfiðum tímum. Stuðningur og umhyggja mega þó ekki snúast upp í forræðishyggju. Grindvíkingum er treystandi til að taka ákvarðanir um eigið líf og við krefjumst þess að stjórnvöld standi ekki í vegi fyrir eðlilegri endurreisn bæjarins.

Fundurinn gerir tvær afdráttarlausar kröfur til stjórnvalda:

1. Skólastarf verði tryggt í haust

Að neita barnafjölskyldum sem vilja snúa heim um grunnþjónustu jafngildir því að stöðva endurreisn bæjarins. Rök um að skólastarf sé of hættulegt standast ekki. Börn dvelja nú þegar í bænum og öryggi þeirra er betur tryggt í skipulögðu skólastarfi en í frítíma.

Stærsta áfall barnanna í Grindavík er að hafa misst tengslanet og vini. Að dæma þau til óvissu í heilt ár í viðbót er óásættanlegt.

2. Jafnræði verði tryggt í húsnæðismálum

Fundurinn treystir því að Fasteignafélagið Þórkatla  muni ekki gera upp á milli íbúa eftir fjölskyldugerð. Öllum fyrrverandi eigendum húsnæðis í Grindavík verður að gera það kleift að flytja aftur í sín hús, kjósi þeir það og það ferli má ekki draga á langinn.

Við skorum á ríkisstjórn og þingmenn Suðurkjördæmis að hlusta á íbúana og vinna með okkur, en ekki gegn okkur. Þá fyrst getur endurreisn samfélagsins í Grindavík hafist fyrir alvöru.