Alþingi framlengir óbreytt fasteignamat í Grindavík til ársins 2027
Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum sem felur í sér að fasteignamat í Grindavíkurbæ verður áfram óbreytt á árinu 2027.

Samkvæmt lagabreytingunni mun fasteignamat allra fasteigna í sveitarfélaginu áfram miðast við fasteignamat ársins 2024, það er áætlað gangvirði fasteigna í febrúar 2023.
Ákvörðunin er tekin vegna áframhaldandi óvissu um verðmæti fasteigna í Grindavík í kjölfar jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaga. Frá rýmingu bæjarins í nóvember 2023 hefur ekki verið virkur fasteignamarkaður í Grindavík og því liggja ekki fyrir nægjanlegar markaðsupplýsingar til að framkvæma hefðbundið fasteignamat.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að áfram ríki veruleg óvissa um framhald eldsumbrota á Reykjanesskaga. Af þeim sökum var talið nauðsynlegt að halda áfram að byggja fasteignamat í Grindavík á sama verðgrunni og áður þar til forsendur skapast til að framkvæma nýtt og áreiðanlegt mat á verðmæti fasteigna í sveitarfélaginu.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hafði áður ákveðið að halda fasteignamati í Grindavík óbreyttu fyrir árin 2025 og 2026. Með nýsamþykktri lagabreytingu hefur Alþingi nú ákveðið að sama fyrirkomulag gildi einnig fyrir fasteignamat ársins 2027.
Nánari upplýsingar um lagabreytinguna og fasteignamat í Grindavík má finna á vef Húsnæðis-, og mannvirkja- og skipulagsstofnunar.


