Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
26. mars 2026

Allar flótta­leið­ir lok­aðar vegna veð­urs

Allar flóttaleiðir úr Grindavík eru lokaðar vegna veðurs. Veður er mjög slæmt á Grindavíkurvegi og Reykjanesbraut er lokuð.

Áhersla er lögð á að halda Grindavíkurvegi og Suðurstrandarvegi opnum sem rýmingarleiðum.

Ef til rýmingar kemur er íbúum og öðrum sem eru í bænum bent á að safnast saman við íþróttahúsið við Austurveg. Þaðan verður skipulagður fylgdarakstur út úr bænum þegar aðstæður leyfa.

Vel gengur að halda gatnakerfi innanbæjar opnu.