55.000 kr. frístundastyrkur í Grindavík
Grindavíkurbær býður börnum og ungmennum á aldrinum 0–18 ára með lögheimili í Grindavík frístundastyrk.

Styrkurinn er 55.000 krónur á hvert barn árið 2026 og má nýta til að greiða niður þátttökugjöld í skipulögðu íþrótta-, lista- og frístundastarfi, frá og með 25. ágúst 2026.
Markmið frístundastyrkjanna er að styðja við þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu frístundastarfi og tryggja þeim jöfn tækifæri til þátttöku.
Styrkurinn fylgir barninu og má nýta hann hjá félögum og öðrum aðilum sem uppfylla skilyrði reglna Grindavíkurbæjar. Styrkinn má því nýta hvort sem frístundastarfið fer fram í Grindavík eða í öðru sveitarfélagi.
Hvernig nýti ég frístundastyrkinn?
Mörg íþrótta- og frístundafélög nota Abler við skráningu og greiðslu þátttökugjalda. Þegar félag hefur verið tengt við frístundastyrki Grindavíkurbæjar geta foreldrar og forráðamenn valið við greiðslu að nýta frístundastyrk barnsins upp í gjöldin.
Hægt er að nýta styrkinn að hluta eða öllu leyti, eftir því sem við á.
Upplýsingar fyrir félög og námskeiðshaldara
Þau félög og námskeiðshaldarar sem sem uppfylla reglur um frístundastyrki Grindavíkurbæjar og vilja bjóða börnum og ungmennum með lögheimili í Grindavík að nýta frístundastyrk hjá sér geta sent upplýsingar á grindavik@grindavik.is.
Grindavíkurbær veitir félögum í kjölfarið upplýsingar um skráningu og fyrirkomulag greiðslna.


