Reglur um frístundastyrki
1. gr. Markmið og tilgangur
Markmið frístundastyrkja Grindavíkurbæjar er að tryggja jafnt aðgengi íbúa að skipulögðu frístunda- og tómstundastarfi, óháð efnahag.
Frístundastyrkir skulu jafnframt:
- stuðla að reglulegri hreyfingu og bættri heilsu,
- efla félagsþátttöku og virkni,
- styðja við forvarnir og jákvæða félagslega þróun,
- bæta lífsgæði íbúa.
2. gr. Réttur til styrks
Rétt til frístundastyrks eiga þau sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Einstaklingar sem verða 18 ára eða yngri á almanaksárinu, miðað við fæðingarár.
- Einstaklingar sem verða 67 ára eða eldri á almanaksárinu, miðað við fæðingarár.
Viðkomandi skal eiga lögheimili í Grindavík.
Réttur stofnast 1. janúar þess árs sem viðkomandi nær tilgreindum aldri.
3. gr. Fjárhæð styrks
Styrkupphæð er ákveðin við gerð fjárhagsáætlunar Grindavíkurbæjar ár hvert.
Styrkur gildir frá 1. janúar til 31. desember.
Styrkur getur aldrei orðið hærri en sem nemur staðfestu þátttökugjaldi.
Ónýttur styrkur flyst ekki milli ára.
4. gr. Styrkhæf starfsemi
Frístundastyrkur er veittur vegna þátttöku í skipulögðu:
- íþróttastarfi
- list- og menningarstarfi
- æskulýðsstarfi
- heilsueflandi námskeiðum
- sambærilegri tómstundastarfsemi
Skilyrði:
- starfsemi skal vera skipulögð og standa í a.m.k. 6 vikur samfellt,
- starfsemi skal fara fram undir leiðsögn hæfs leiðbeinanda eða þjálfara.
Líkamsrækt:
Hóptímar í líkamsrækt teljast styrkhæf starfsemi enda séu þeir skipulagðir, fari fram undir leiðsögn leiðbeinanda og uppfylli að öðru leyti skilyrði greinar þessarar.
Almennur aðgangur að líkamsræktarstöð eða kaup á opnum líkamsræktarkortum telst ekki styrkhæf starfsemi.
Þó er heimilt að veita styrk til kaupa á tímabundnum líkamsræktarkortum (3–12 mánuðir) fyrir:
- einstaklinga sem verða 14–18 ára á almanaksárinu, og
- einstaklinga sem verða 67 ára eða eldri á almanaksárinu,
enda sé staðfest að viðkomandi fái leiðsögn við upphaf notkunar.
Frístundastyrkur er ekki veittur fyrir:
- búnað, fatnað eða ferðakostnað
- keppnis- eða mótsgjöld
- óskipulagt eða tilfallandi starf
5. gr. Styrkhæfir aðilar
Aðilar sem taka við frístundastyrk skulu:
· vera lögaðilar með kennitölu
· reka starfsemi sem uppfyllir skilyrði 4. gr.
· leggja fram upplýsingar um starfsemi, gjaldskrá og ábyrgðaraðila
· gera samstarfssamning við Grindavíkurbæ
Umsókn um styrkhæfi skal vera skrifleg.
Ef skilyrði eru ekki uppfyllt skal umsókn synjað.
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fer með mat á styrkhæfi aðila samkvæmt grein þessari og tekur ákvörðun um hvort skilyrði séu uppfyllt.
6. gr. Framkvæmd og greiðslur
Frístundastyrkur:
- er ráðstafað til viðurkennds aðila,
- er greiddur beint til aðila eða endurgreiddur gegn framvísun gildrar kvittunar.
Ekki er heimilt að:
- ráðstafa hærri upphæð en sem nemur þátttökugjaldi,
- fá styrk endurgreiddan eftir staðfesta ráðstöfun, nema vegna sannanlegra mistaka.
7. gr. Umsóknir og fylgigögn
Með umsókn skal fylgja:
- staðfesting á þátttöku
- greiðslukvittun þar sem fram kemur:
- nafn og kennitala iðkanda
- tegund starfsemi
- tímabil
- nafn og kennitala útgefanda
Umsóknarfrestur er til 31. desember viðkomandi árs.
8. gr. Eftirlit og ábyrgð
Ef skilyrði eru ekki uppfyllt er heimilt að:
- synja um greiðslu
- krefjast endurgreiðslu
- fella niður eða afturkalla heimild aðila til að taka við styrk
Sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs hefur eftirlit með framkvæmd reglna þessara og sér um daglega stjórnsýslu frístundastyrkja.
9. gr. Sérákvæði vegna sérstakra aðstæðna í Grindavík
Vegna sérstakra samfélagsaðstæðna er Grindavíkurbæ heimilt að:
- ákvarða hærri styrkupphæð tímabundið,
- skilgreina tiltekin frávik frá 4. gr. um lengd eða tegund starfsemi,
- veita viðbótarstuðning til afmarkaðra hópa.
Slíkar ákvarðanir skulu vera teknar af bæjarstjórn.
10. gr. Málsmeðferð
Ákvarðanir samkvæmt reglum þessum teljast stjórnvaldsákvarðanir.
Synjun skal rökstudd ef þess er óskað.
11. gr. Gildistaka og endurskoðun
Reglur þessar taka gildi við samþykkt í bæjarstjórn.
Samþykkt á fundi bæjarstjórnar 5. maí 2026