Merki Grindavíkur
Byggðamerki Grindavíkur sýnir svartan geithafur með gullin horn á bláum og hvítum öldufaldi. Geithafurinn er tákn frjósemi og framtakssemi sem fylgt hefur Grindvíkingum alla tíð. Við erum ákaflega stolt af byggðamerkinu okkar og notum það gjarnan sem tákn samfélagsins.
Blár litur hafsins í grunni með hvítum ölduföldum er sá grundvallarveruleiki, sem Grindavík byggist á, en hafurinn er tákn þeirrar frjósemi og búhygginda, sem skila Grindvíkingum til þroska og þróunar í fortíð, nútíð og framtíð. Þeir sem vilja, mega gjarnan láta hvítar rendurnar í grunni vísa til fyrri hluta nafnsins Grindavík. Merkið er fallegt og sterkt í formi og eftirminnilegt við fyrstu sýn, og í sparibúningi sínum í lit gleður það augað.