Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
25. september 2026

Vika sem fer í sögu­bæk­urnar

Sumar vikur geta verið giska tíðinalausar. Aðrar fara í sögubækurnar. Vikan sem nú er að líða er ein af þeim.

Á IceFish í Fífunni í Kópavogi stóðu um tuttugu grindvísk fyrirtæki saman að einum bás undir merkinu Grindavík - Saman í sókn. Útgerð og vinnsla, fiskeldi, tækni, hafnarþjónusta, flutningar, matvæli og ferðaþjónusta, hlið við hlið. Básinn var reistur úr öryggisgirðingum sem fyrir skemmstu lokuðu götum í bænum okkar. Nú loka þær engu. Nú ramma þær inn grindvískt atvinnulíf og framtíðina í bænum.

Sjávarútvegurinn hefur alltaf verið hjarta Grindavíkur, er það enn og verður enn öflugari í bjartri framtíð bæjarins, ásamt öðru fjölbreyttu og öflugu atvinnulífi. Í kringum hann hefur byggst upp heil keðja fyrirtækja, þekkingar og starfa. Fyrirtækin hafa staðið vaktina í gegnum erfiða tíma, haldið starfseminni gangandi og stutt hvert annað. Samstaðan í Fífunni sagði meira en margar ræður. Þetta var sókn og mark fyrir bæinn okkar.

Á þriðjudagskvöld kynntum við svo fyrstu niðurstöður nýs áhættumats fyrir Grindavík. Þetta eru tímamót. Matið gefur okkur skýrari mynd af stöðunni og traustan grunn til að taka ábyrgar ákvarðanir um öryggi, búsetu og þjónustu. Staðan er metin ásættanleg við núverandi forsendur og með virkri eftirfylgni. Það þýðir ekki að náttúruváin sé horfin. Það þýðir að við höfum þekkinguna, verkfærin og viðbúnaðinn til að stýra áhættunni. Og þetta er lifandi stöðumat, byggt á vísindum og staðbundinni þekkingu, sem verður uppfært þegar aðstæður breytast.

Áhættumatið er forsenda endurreisnar Grindavíkur. Það er grunnurinn að því að fólk geti séð raunverulegan möguleika á að koma aftur heim.

Mikil vinna liggur að baki og margir hafa komið að henni: íbúar og heimafólk, starfsfólk bæjarins, viðbragðsaðilar, almannavarnir og sérfræðingar. Ég þakka ykkur öllum innilega. Sama gildir um fyrirtækin sem stóðu saman á sýningunni og alla sem lögðu hönd á plóg við undirbúninginn.

Þegar betur er að gáð eru þetta ekki tvær fréttir heldur ein og sama sagan. Fyrirtækin sýna að Grindavík á öflugt atvinnulíf og bjarta framtíð. Áhættumatið sýnir að við getum byggt þá framtíð á öruggum grunni.

Endurreisnin gerist í markvissum og öruggum skrefum fram á við. Í þessari viku tókum við tvö stór.

Góða helgi,

Pétur G. Markan

bæjarstjóri Grindavíkurbæjar