Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
29. janúar 2026

Tjóna­mati í Grinda­vík að mestu lokið

Tjónamati í Grindavík er nú að mestu lokið, en fáein mál eru enn í vinnslu. Hluti matsins fól í sér ítarlega jarðkönnun við valdar eignir til að meta hvort þær teljist viðgerðarhæfar.

Jarðkönnunin var framkvæmd af sérfræðingum í jarð- og jarðverkfræði og byggði á kortlagningu sprungna í bænum. Alls var talin þörf á nánari rannsóknum á 47 lóðum þar sem grafið var með gröfu að sprungum í bergi og/eða framkvæmd nánari sjónskoðun.

Nánari upplýsingar um framkvæmd matsins og niðurstöður jarðkönnunar má finna í frétt á vef Náttúruhamfaratryggingar Íslands.