Tilkynning til eigenda númerslausra ökutækja
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja hefur sent frá sér áskorun til eigenda númerslausra ökutækja.

Á Suðurnesjum eigum við verðmætt umhverfi sem við viljum vernda og halda snyrtilegu. Númerslaus, illa hirt og yfirgefin ökutæki geta haft skaðleg áhrif á náttúruna, bæði með mögulegum leka á olíu og öðrum spilliefnum sem menga jarðveg og grunnvatn og með því rýra ásýnd og gæði nærumhverfisins.
Við hvetjum því eigendur númerslausra ökutækja á Suðurnesjum til að fjarlægja þau eða koma þeim í löglega förgun.
Þannig sýnum við gestum okkar, nágrönnum, samfélaginu og náttúrunni virðingu.
Ef eigendur grípa ekki til ráðstafana getur Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja sett tilkynningarmiða á ökutækið þar sem eigendum er veitt tækifæri til að bregðast við. Að fresti liðnum má búast við að ökutækið verði fjarlægt á kostnað eiganda.
Markmiðið er að tryggja hreint, öruggt og fallegt umhverfi fyrir alla íbúa og gesti Suðurnesja.
Frekari upplýsingar um númerslaus ökutæki, lóðarhreinsanir og valdheimildir heilbrigðiseftirlitsins má finna á heimasíðu embættisins.
Takk fyrir gott samstarf og góðar undirtektir.
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja


