Takmörkuð þjónusta vegna sumarleyfa
Vegna sumarleyfa verður þjónusta Grindavíkurbæjar takmörkuð næstu vikurnar.

Bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar verða lokaðar frá og með 25. júlí og opna aftur 10. ágúst.
Ef þú þarft að eiga erindi við starfsfólk Grindavíkurbæjar á næstu vikum er gott að hafa þessa lokun í huga.
Á lokunartímanum er starfsfólk á bæjarskrifstofum í sumarleyfi. Hægt er að senda erindi á grindavik@grindavik.is og verður erindum forgangsraðað. Ekki er hægt að búast við svari fyrr en að loknum sumarleyfum, nema um brýn mál sé að ræða.
Slökkvilið Grindavíkur
Þjónusta slökkviliðs Grindavíkurbæjar helst óskert yfir sumarleyfistímann og neyðarþjónusta er því með óbreyttu sniði.
Íþróttamannvirki Grindavíkur
Íþróttamannvirki Grindavíkurbæjar verða opin sem hér segir í sumar:
- Mánudaga kl. 16:00–21:00
- Miðvikudaga kl. 16:00–21:00
- Laugardaga kl. 12:00–17:00
Neyðarnúmer þjónustumiðstöðvar
Ef upp koma brýn mál sem geta ekki beðið, svo sem vegna vatnsveitu, fráveitu, brotinna rúða eða annarra sambærilegra atvika, er hægt að hafa samband við þjónustumiðstöð Grindavíkurbæjar í síma 660 7343.
Starfsfólk Grindavíkurbæjar óskar Grindvíkingum öllum gleðilegs sumars og góðra stunda!


