Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
11. mars 2026

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar 2026 - Fram­boðs­frest­ur til 10. apríl

Skilafrestur framboða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 í Grindavík rennur út kl. 12:00 á hádegi þann 10.apríl 2026. Tilkynningum um framboð skal skilað á bæjarskrifstofur Grindavíkur eða til formanns kjörstjórnar.

Nánari upplýsingar eru gefnar á bæjarskrifstofu eða hjá kjörstjórn.

Kjörstjórn vill vekja sérstaka athygli á 39. gr. laga. nr. 112/2021 en þar er kveðið á um fjölda meðmælenda með framboðslistum sem skuli vera að lágmarki 20 og hámarki 40 í Grindavíkurbæ.

Athygli er einnig vakin á því, að einungis er unnt að skila meðmælendalista á pappírsformi.

Kjörstjórn Grindavíkurbæjar:

Kjartan Fr. Adólfsson, formaður
Bryndís Gunnlaugsdóttir
Dóróthea Jónsdóttir.