Stjórnvöld verða að hætta að tefja endurreisn Grindavíkur
Fréttatilkynning frá bæjarstjórn Grindavíkur.

Nýkjörin bæjarstjórn Grindavíkur fundaði miðvikudaginn 3. júní með stjórn og framkvæmdastjóra Fasteignafélagsins Þórkötlu. Á fundinum var farið yfir stöðu húsnæðismála, fasteignakaup og framtíðaráform félagsins í bænum.
Þótt fundurinn hafi verið um margt gagnlegur, staðfesti hann þann rökstudda grun bæjaryfirvalda að það er ekki Fasteignafélagið Þórkatla sem stendur í vegi fyrir lausnum fyrir Grindvíkinga, heldur stjórnvöld. Á fundinum kom skýrt fram af hálfu fulltrúa Þórkötlu að félagið sé nánast að fullu í eigu ríkisins og þurfi að lúta vilja eiganda síns þegar kemur að stórum ákvörðunum um endurkaup og búsetu. Það er vitað að fasteignafélagið hafði fyrir nokkru unnið að útfærslum á endurkaupum og lausnum fyrir íbúa og var ekkert því til fyrirstöðu strax í mars að kynna þær útfærslur.
Það er mat bæjarstjórnar að stjórnvöld séu vísvitandi að beita Þórkötlu fyrir sig til að tefja endurreisn Grindavíkur og koma í veg fyrir að fjölskyldur geti snúið heim.
Í stað þess að greiða götu þeirra sem vilja og geta snúið heim, er nú verið að þrengja enn frekar að íbúum. Nýkynnt áform um að takmarka heimild fyrrverandi eigenda (hollvina) til dvalar við aðeins 12 nætur í mánuði frá og með 1. september munu hafa verulega neikvæð áhrif á samfélagið, viðhald eigna og lífið í bænum. Fyrir marga voru þessir dvalarsamningar líflína og mikilvægt milliskref til að máta sig við aðstæður í heimabænum á meðan beðið var eftir þeim endurkaupasamningum sem stefnt var að.
Bæjarstjórn lýsir yfir miklum vonbrigðum með þá neikvæðu og fjandsamlegu afstöðu sem stjórnvöld sýna gagnvart skjótri enduruppbyggingu bæjarfélagsins. Stjórnvöld hafa skýlt sér á bak við áhættumat sem unnið hefur verið án aðkomu eða samráðs við sveitarfélagið og tekur lítið sem ekkert tillit til þeirra miklu mótvægisaðgerða sem þegar hefur verið ráðist í af hálfu bæjarins.
Ný bæjarstjórn Grindavíkur krefst þess að ríkisstjórnin stígi fram úr skugga Þórkötlu og tali skýrt við heimamenn. Grindavíkurbær er tilbúinn til samstarfs um raunhæfar lausnir og krefst þess að heimkoma þeirra Grindvíkinga sem hennar óska, verði ekki tafin að óþörfu.
Bæjarstjórn Grindavíkur


