Starf sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs laust til umsóknar
Grindavíkurbær leitar að metnaðarfullum, framsýnum og öflugum leiðtoga til að gegna starfi sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs.

Um er að ræða einstakt og mikilvægt tækifæri til að taka þátt í endurreisn samfélags sem stendur frammi fyrir uppbyggingu og þróun einstaks mannlífs og atvinnulífs.
Sviðsstjóri veitir sviðinu faglega og stjórnunarlega forystu og starfar í samræmi við stefnur sveitarfélagsins og lög og reglugerðir er varða starfsemina. Sviðsstjóri gegnir lykilhlutverki í þróun og uppbyggingu sveitarfélagsins og tekur þátt í að móta framtíðarsýn þess með áherslu á vandaða stjórnsýslu og góða þjónustu við íbúa og atvinnulíf. Heildarendurskoðun aðalskipulags er fyrirhuguð í sveitarfélaginu og mun sviðsstjóri leiða það verkefni.
Grindavík verður áfram verðmætaskapandi lífsgæðaumhverfi. Þetta er spennandi tækifæri fyrir aðila sem þrífst vel í síbreytilegu umhverfi og býr yfir vilja til að taka þátt í næstu sögulegu skrefum í endurreisn bæjarins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg, stjórnunarleg og rekstrarleg forysta.
- Ábyrgð á skipulagsgerð og útgáfu framkvæmdaleyfa.
- Ábyrgð á starfs-, fjárhags- og framkvæmdaáætlun sviðsins.
- Ábyrgð á rekstri og viðhaldi mannvirkja í eigu sveitarfélagsins sem og útboðum og gerð samninga í tengslum við rekstur mannvirkja.
- Samskipti við bæjarstjórn, bæjarráð, fastanefndir sveitarfélagsins á vettvangi málaflokkanna, önnur sveitarfélög, stofnanir, íbúa og aðra hagaðila.
- Kemur að mótun og framfylgir stefnu sveitarfélagsins í málaflokkum sviðsins.
- Umsjón með stefnumótun í þeim málaflokkum sem undir hann heyra í samvinnu við fagnefnd sviðsins.
- Starfar í samræmi við skipulagslög, mannvirkjalög og önnur lög sem heyra undir verksviðið.
- Ráðgjöf, undirbúningur og framlagning mála fyrir fagnefnd sviðsins og bæjarráð ásamt eftirfylgni mála.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði verk- og tæknigreina.
- Réttindi til að starfa sem skipulagsfulltrúi eru æskileg.
- Reynsla af skipulagsgerð og skipulagsmálum er æskileg.
- Þekking eða reynsla af verkefnum á sviði byggingar-, framkvæmda, skipulags-, eða umhverfismálum er æskileg.
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu og störfum hjá sveitarfélagi er kostur.
- Leiðtoga- og samskiptahæfni.
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð tölvukunnátta og áhugi á stafrænum umbótum.
Sótt er um starfið á vef Hagvangs. Umsókninni skal fylgja ítarleg ferilskrá, auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar auk rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasamt fólk til að sækja um, sérstaklega einstaklinga sem hafa áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í Grindavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun liggur fyrir.
Upplýsingar veitir
Geirlaug Jóhannsdóttir – geirlaug@hagvangur.is.


