Staða bæjarstjóra laus til umsóknar
Grindavíkurbær auglýsir eftir traustum og farsælum leiðtoga til að gegna stöðu bæjarstjóra.

Grindavík hefur á undanförnum misserum tekist á við fordæmalausar aðstæður sem kallað hafa á skýra forystu og samheldni. Bæjarstjóri gegnir lykilhlutverki í endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur í nánu samstarfi við bæjarstjórn, starfsfólk, íbúa, atvinnulíf og stjórnvöld. Framundan er mikilvægt tímabil þar sem áhersla er lögð á enduruppbyggingu samfélagsins, styrkingu þjónustu og innviða og áframhaldandi þróun öflugs atvinnulífs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun og rekstur Grindavíkurbæjar
- Framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og stefnumótun í samstarfi við kjörna fulltrúa
- Forysta í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins og þjónustu við íbúa
- Ábyrgð á fjárhagsáætlun, áætlanagerð og eftirfylgni
- Mannauðsstjórnun og áframhaldandi uppbygging öflugrar stjórnsýslu
- Samskipti við íbúa, atvinnulíf, stjórnvöld og samstarfsaðila
- Undirbúningur funda bæjarstjórnar og nefnda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
- Reynsla af stefnumótun og flóknum breytingaferlum
- Stefnumótandi hugsun og áhugi á uppbyggingu samfélagsins
- Seigla og hæfni til að vinna undir álagi og stýra flóknum verkefnum af fagmennsku
Grindavík er öflugt og samheldið samfélag sem hefur á undanförnum misserum staðið frammi fyrir krefjandi aðstæðum vegna jarðhræringa. Sveitarfélagið vinnur markvisst að enduruppbyggingu með áherslu á öryggi, velferð íbúa og sterka innviði til framtíðar.
Grindavík hefur verið einn öflugasti útgerðarbær landsins með kraftmiklum og vel reknum útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum, og ferðaþjónusta hefur þróast hratt með Bláa lónið sem einn fjölsóttasta áfangastað landsins í næsta nágrenni.
Samfélagið leggur ríka áherslu á fjölskyldugildi, öflugt íþróttastarf og góða þjónustu við íbúa. Náttúra svæðisins er sérstök og fjölbreytt, með stutt í gönguleiðir og vinsælan 18 holu golfvöll.
Grindavík byggir á sterkum grunni og miklum vilja til að þróa áfram kraftmikið og sjálfbært samfélag til framtíðar.
Sótt er um starfið á vef Hagvangs. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar
Geirlaug Jóhannsdóttir – geirlaug@hagvangur.is


