Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
31. júlí 2026

Sam­staða og öfl­ug sam­vinna í brenni­depli

Pétur G. Markan, bæjarstjóri í Grindavík, hefur sent frá sér kveðju í aðdraganda verslunarmannahelgarinnar.

Kæru Grindvíkingar, samstarfsfólk og vinir.

Verslunarmannahelgin er gengin í garð, tími sem jafnan tengist samveru, hvíld og gleði með fjölskyldu og vinum. Við Grindvíkingar þekkjum það betur en flestir hversu dýrmæt slík samvera er, og hversu mikilvægt það er að hlúa að innri styrk og samheldni samfélagsins á krefjandi tímum.

Ég vil nýta þetta tækifæri og deila því með ykkur, með stolti og þakklæti, hversu ótrúleg vinna hefur verið í gangi undanfarið. Hér er unnið dag sem nótt við að móta og innleiða nýja, lifandi aðferðafræði við áhættumat og áhættumiðaða ákvarðanatöku fyrir þéttbýlið í Grindavík. Þetta er verkefni sem á sér enga hliðstæðu á Íslandi. Við erum að stíga skrefið frá því að vera einungis í neyðarviðbragði yfir í það að skipuleggja stýrða og áfallaþolna sambúð við náttúruöflin, þar sem markmiðið er að opna bæinn okkar jafnt og þétt og gera búsetu og atvinnulíf fyrirsjáanlegra. Markmiðið er; lítil og örugg, en markviss skref að endurreisn.

Fjölmargir sérfræðingar standa með okkur

Nýtt og lifandi áhættumat verður að endingu á ábyrgð heimamanna en það er einstaklega dýrmætt að finna að Grindavík stendur ekki ein í þessari flóknu vinnu. Undanfarnar vikur hafa fjórir öflugir vinnuhópar starfað samhliða og rýnt hverja einustu grunnstoð samfélagsins – allt frá öryggi bæjarins og innviða, yfir í skólahald, búsetu og skipulag rýmingar og endurkomu.

Í þessum hópum sitja ekki aðeins fulltrúar frá Grindavíkurbæ, heldur höfum við fengið til liðs við okkur fjölda sérfræðinga og stofnana utan bæjarins sem leggja okkur lið af mikilli fagmennsku. Vísindamenn frá Háskóla Íslands, verkfræðingar, ráðuneytisfólk, fulltrúar lögreglu, slökkviliðs og Almannavarna, auk fulltrúa frá Þorkötlu, Unicef, Farsældarráði Suðurnesja og fleiri fagaðilar hafa lagt, og munu leggja, hönd á plóg.

Öll þessi vinna er unnin á grunni skýrslu og vinnu sérfræðinga Alþjóðabankans, sem fært hafa okkur dýrmæta reynslu úr svipuðum hamförum erlendis. 

Vinnan heldur áfram strax eftir helgi

Þótt við leyfum okkur að taka stutt andartak til að njóta verslunarmannahelgarinnar og hlaða batteríin, þá munum við ekki slá slöku við. Vinnan í vinnuhópunum heldur áfram jafnharðan þriðjudaginn næstkomandi, strax eftir frídag verslunarmanna. Þar munum við halda áfram að fínstilla vísana okkar og mótvægisaðgerðir svo við getum kynnt nákvæma stöðu áhættumatsins og næstu skref í skóla- og húsnæðismálum sem fyrst fyrir íbúum og fjölmiðlum.

Mér þykir óendanlega vænt um að finna þá seiglu, jákvæðni og fagmennsku sem einkennir alla sem koma að þessu borði. Við ætlum að skrifa þessa sögu saman og skapa fordæmi sem nýst getur um land allt.

Fyrir mína hönd, og bæjarstjórnarinnar, óska ég ykkur öllum, hvar sem þið verðið um helgina, gleðilegrar og öruggrar verslunarmannahelgar. Farið varlega og njótið samverunnar.

Pétur G. Markan
bæjarstjóri í Grindavík