Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
8. maí 2026

Pist­ill bæj­ar­stjórn­ar 8. maí 2026: Sam­staða, upp­bygg­ing og bjart­ari tím­ar fram und­an

Sumarið er fram undan og víða má sjá ummerki þess Grindavík. Hér fyrir neðan förum við yfir nokkur af þeim verkefnum, framkvæmdum og viðburðum sem setja svip sinn á bæinn þessa dagana.

Við viljum byrja á því að þakka ykkur kærlega fyrir komuna og þátttökuna á kraftmiklum íbúafundi á dögunum. Þar skein samstaða og skýr vilji Grindvíkinga í gegn og sýndi hversu sterkt samfélag við eigum. 

Í kjölfarið átti bæjarstjórn síðan fund með forsætisráðherra og hennar fólki til að fylgja eftir okkar málum. Bæði á íbúafundinum og á fundinum með ráðherra var farið yfir þau stóru mál sem brenna á okkur öllum; sálrænan stuðning, áhættumat, húsnæðismálin hjá Fasteignafélaginu Þórkötlu og framtíð skólamála í bænum. Þetta samtal mun halda áfram með nýrri bæjarstjórn sem verður kjörin á næstunni.  

Lagt er til að varðveita ákveðna byggingarhluta (merkt með bleiku) við Víkurbraut ef mögulegt er

Framkvæmdir sumarsins og minjavarsla: Græðum sárin

Sumarið framundan verður nýtt til að græða sárin innanbæjar. Meðal annars stendur til að hefjast handa við framkvæmdir á skólalóðinni við Ásabraut, endurnýja leiktæki og fegra þau svæði þar sem niðurrif hefur átt sér stað. d

Niðurrifsverkefnin ganga mjög vel en eru eðli málsins samkvæmt tímafrek. Stefnt er að því að búið verði að fjarlægja öll hús á sprungusvæðum fyrir lok sumars. Fljótlega hefst niðurrif við Víkurbraut en þar verður sérstaklega hugað að minjavörslu. Við leggjum mikla áherslu á að varðveita ákveðna hluti og einkenni húsa á svæðinu. Þannig viljum við halda til haga áþreifanlegum vitnisburði um húsin og það samfélag sem þar blómstraði og skapa jafnframt minningu um þær hamfarir sem gengið hafa yfir. 

Staðan á sprunguviðgerðum

Markvissar sprunguviðgerðir eru í fullum gangi og munu standa yfir fram í næsta vetur. Þessa dagana er til að mynda verið að vinna að viðgerðum við íþróttahúsið. Fljótlega munu viðgerðir svo hefjast á nýjum svæðum, þar á meðal við Austurveg og Mánagötu, á svæðinu við Staðarsund og Vörðusund, sem og á æfingavellinum og upp að Suðurhópi (alla leið frá Salthúsinu). 

Jón og Margeir hafa undanfarnar vikur unnið að sprunguviðgerð við íþróttamannvirkin

Áfram Grindavík! 

Meistaraflokkur karla í körfubolta er kominn í úrslitaviðureign Íslandsmótsins í körfuknattleik. Við óskum þeim til hamingju með það og hvetjum þá til áframhaldandi stórra sigra. Meistaraflokkur kvenna náði frábærum árangri í vetur, þótt titilvon sé úti í bili. Áfram Grindavík! 

Takk fyrir kjörtímabilið

Sveitarstjórnarkosningar eru framundan og kjörtímabilið er að renna sitt skeið. Við í bæjarstjórn viljum því nýta þetta tækifæri og þakka ykkur öllum kærlega fyrir samstarfið á kjörtímabilinu og þá ótrúlegu samstöðu sem Grindvíkingar hafa sýnt á þessum fordæmalausu tímum. 

Með kveðju og ósk um bjart sumar, 

Bæjarstjórn Grindavíkur