Pistill bæjarstjórnar 4. mars 2026 - Staðan í öryggis-, fasteigna- og skólamálum
Hér er stutt yfirlit yfir stöðuna í þremur af þeim stóru málaflokkum sem unnið er að um þessar mundir og skipta miklu máli fyrir framhald endurreisnar í Grindavík.

Öryggismál og innviðir – Markvissar sprunguviðgerðir
Mikilvægur áfangi í endurreisn Grindavíkur stendur nú yfir þar sem unnið er markvisst að því að tryggja öryggi og endurbyggja innviði bæjarins. Öflugt átak er hafið í sprunguviðgerðum innan þéttbýlisins og er það algjör forsenda þess að hægt sé að draga úr lokunum og fækka afgirtum hættusvæðum.
Góður gangur er í verkinu hjá verktökum víðsvegar um bæinn. Samhliða þessu er unnið að niðurrifi altjónaðra húsa, en stór hluti þeirra stendur ofan á sprungum og því óhjákvæmilegt að rífa þau til að hægt sé að klára viðgerðir í jörðu. Allt miðar þetta að því að gera bæinn okkar öruggan á ný.
Fasteignamál – Beðið eftir nýrri áætlun í mars
Hvað varðar framtíðarlausnir í húsnæðismálum vinnur Fasteignafélagið Þórkatla að nýrri heildaráætlun. Bæjaryfirvöld eiga í samtali við félagið og hafa lagt þunga áherslu á mikilvægi þess að íbúum standi til boða fjölbreyttar lausnir til að snúa aftur, líkt og kaupleiga eða önnur leiguúrræði. Gert er ráð fyrir að Þórkatla kynni sitt útspil og endanlega útfærslu á þessum valkostum seint í mars.
Skólamál – Auglýst eftir skólastjóra og foreldrafundur í undirbúningi
Eins og fram hefur komið samþykkti bæjarstjórn nýlega að auglýsa eftir skólastjóra sem mun stýra sameinuðum leik- og grunnskóla Grindavíkur. Þetta er ábyrgt skref til að halda dyrunum opnum og tryggja að hægt verði að bjóða upp á skólastarf haustið 2026, ef aðstæður, öryggi og eftirspurn leyfa.
Til þess að undirbúa næsta vetur sem allra best er stefnt að því að halda fund á næstunni með foreldrum leik- og grunnskólabarna í Grindavík. Markmiðið með fundinum er að ræða málin opinskátt, hlusta á foreldra og skipuleggja í sameiningu skólahald, tómstundir og íþróttastarf af fullum krafti. Dagsetning fundarins verður auglýst nánar mjög fljótlega.
Með kveðju,
Bæjarstjórn Grindavíkur


