Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
16. nóvember 2026

Pist­ill bæj­ar­stjórn­ar 16. nóv­em­ber 2026: Vilji Grind­vík­inga er skýr

Bæjarstjórn Grindavíkur hefur lýst yfir vantrausti á vinnubrögð Þórkötlu. Augljóst er að félagið nýtur ekki trausts Grindvíkinga.

Verkefni Þórkötlu er að vinna það traust aftur með þéttu og góðu samráði við íbúa bæjarins.

Á íbúafundinum í Gjánni 11. nóvember kom skýrt fram að Grindvíkingar vilja breytingar á áætluninni. Fundarmenn settu fram ýmsar tillögur og bæjarstjórn hefur tekið þær helstu saman. Þórkatla og yfirvöld verða að sýna þeim skilning og ræða þær af fullri alvöru við íbúa bæjarins.

Helstu tillögur á fundinum:

  1. Seinna upphaf, svo barnafólk þurfi ekki að flytja á miðju skólaári.
  2. Framlenging hollvinasamninga.
  3. Leiga á kostnaðarverði þar til atburðinum lýkur.
  4. Verð sem tekur mið af stöðunni í dag.
  5. Sömu reglur um ástand húsa í báðar áttir.
  6. Léttari greiðslubyrði í byrjun.
  7. Lengri forkaupsréttur.
  8. Niðurfelling stimpil- og þinglýsingargjalda.
  9. Aðkoma Grindvíkinga að endurskoðun áætlunarinnar.

Tillögurnar sýna hvar Þórkatla getur byrjað ef félagið vill vinna traust Grindvíkinga aftur.

Í Gjánni fundum við fyrir sterkri samstöðu um að Grindvíkingar fái að móta eigin framtíð. Við verðum að halda í þá samstöðu.

Bæjarstjórn mun fylgja tillögum fundarins eftir við Þórkötlu og stjórnvöld og krefjast þess að Grindvíkingar fái að koma að endurskoðun áætlunarinnar.

Grindavík verður ekki byggð upp án Grindvíkinga.

Pistill bæjarstjórnar 16. nóvember 2026: Vilji Grindvíkinga er skýr - Grindavíkurbær