Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
12. nóvember 2026

Pist­ill bæj­ar­stjórn­ar 12. nóv­em­ber 2026: Bæj­ar­stjórn lýs­ir yfir van­trausti á vinnu­brögð Þór­kötlu

Bæjarstjórn Grindavíkur lýsir yfir vantrausti á vinnubrögð og framgöngu Fasteignafélagsins Þórkötlu gagnvart Grindvíkingum.

Niðurstaða íbúafundarins í Gjánni 11. nóvember er afdráttarlaus. Grindvíkingar treysta ekki stjórn og stjórnendum Fasteignafélagsins Þórkötlu og hafna endurkaupaáætlun félagsins í núverandi mynd. Þeim finnst félagið hvorki hlusta á Grindvíkinga né skilja aðstæður þeirra. Eftir þrjú ár af strjálum samskiptum og einhliða ákvörðunum Fasteignafélagsins Þórkötlu treysta þeir ekki félaginu.

Áætlunin ber þess merki að stjórnendur Fasteignafélagsins Þórkötlu skorti skilning á verkefninu og raunverulegum aðstæðum Grindvíkinga. Tímasetningin hentar ekki fjölskyldum, kaupverðið tekur ekki mið af ástandi fasteigna og áhættan hvílir á þeim sem fyrstir koma heim.

Grindvíkingar eru ekki að biðja um ölmusu og vilja ekkert frítt. Þeir vilja að hlustað sé á sjónarmið þeirra en það hefur Fasteignafélagið Þórkatla ekki gert nema að litlu leyti.

Uppkaupin voru björgunaraðgerð í miðjum náttúruhamförum og endurkaupaáætlunin á að vera mikilvægt skref í þeirri aðgerð. Samkvæmt lögum er markmiðið að verja fjárhag og velferð íbúa í Grindavík. Fyrirliggjandi áætlun Fasteignafélagsins Þórkötlu virðir það markmið að vettugi.

Bæjarstjórn skorar á stjórn og stjórnendur Fasteignafélagsins Þórkötlu að hlusta á sjónarmið Grindvíkinga og endurskoða áætlunina í samstarfi við þá.

Grindavík verður ekki byggð upp án Grindvíkinga.

Bæjarstjórn Grindavíkur