Pistill bæjarstjórnar 10. júlí 2026: Vatnaskil í lykilmálum
Nýr bæjarstjóri, nýr tónn forsætisráðherra og nýjar aðferðir við áhættumat

Kæru Grindvíkingar,
Að okkar mati eru að verða nokkur vatnaskil í mikilvægum málum sem snerta uppbyggingu Grindavíkur. Nýr bæjarstjóri hefur tekið til starfa, forsætisráðherra hefur slegið nýjan tón hvað varðar samstarf og þróun í bænum og merkilegum áfanga var náð við gerð áhættumats fyrir Grindavík.
Nýr bæjarstjóri tekinn við
Pétur G. Markan hefur tekið við sem nýr bæjarstjóri Grindavíkur. Hann hefur þegar hafið störf af miklum krafti og bæjarstjórn væntir mikils af hans verkum og samstarfinu við hann.
Ný aðferðafræði við endurskoðun áhættumats í fullum gangi
Framgangur margra mála í Grindavík er háður því að fyrir liggi faglegt og vandað áhættumat sem er í sífelldri vöktun og endurskoðun. Vinna við endurskoðun á áhættumati fyrir Grindavík er því í algjörum forgangi.
Í júní fóru fram viðamiklar vinnustofur þar sem sjónarmið og reynsla heimamanna, viðbragðsaðila og atvinnulífs voru dregin saman til að tryggja víðtækt samráð.
Búið er að taka saman helstu niðurstöður og afurðir úr þessari vinnu. Við mótun og úrvinnslu þessara gagna höfum við notið aðstoðar og sérþekkingar sérfræðinga Alþjóðabankans og innlends vísindafólks og sérfræðinga. Markmið okkar og yfirvalda er skýrt: Að breyta áhættumatinu í lifandi og gagnadrifið stjórntæki sem getur opnað bæinn til uppbyggingar og búsetu með öryggi og velferð íbúa að leiðarljósi. Stjórntæki sem tekur raunhæft tillit til þeirra miklu varna og viðgerða sem þegar hafa verið gerðar í bæjarlandinu okkar og tekur mið af þekkingu og reynslu heimamanna.
Fimmtudaginn 9. júlí fengu bæjarstjórn og bæjarstjóri kynningu sérfræðinga á því hvernig nýtt áhættumat verður unnið og í dag, föstudaginn 10. Júlí, verður lögð fram kynning fyrir ríkisstjórnarfund. Nú er lykilatriði þegar skriður er kominn á málið, að vinna það áfram af fullum þunga.
Vinnufundur með Fasteignafélaginu Þórkötlu
Í vikunni átti bæjarstjórn Grindavíkur vinnufund með forsvarsmönnum Þórkötlu. Á fundinum var farið yfir húsnæðismálin, gistináttasamninga og áframhaldandi kröfur okkar um endurkaupaáætlun. Við lögðum þunga áherslu á að eyða óvissu og skapa raunverulegan fyrirsjáanleika fyrir íbúa. Það er sameiginleg sýn okkar að endurreisn bæjarins verði best tryggð með góðu samstarfi og að ríkið og Þórkatla styðji með virkum hætti við þá Grindvíkinga sem vilja snúa heim. Nýtt verklag við gerð áhættumats mun greiða betur og skilvirkar fyrir uppbyggingu bæjarins. Það er því mikilvægt að tillögur Þórkötlu að endurkaupum, sem og aðrar leiðir, verði kynntar Grindvíkingum á allra næstu vikum. Að okkar mati eru að myndast skýrar forsendur fyrir því að falla megi frá boðaðri skerðingu á dvalartíma í húsum Þórkötlu, í ljósi nýjustu vendinga við gerð áhættumats.
Við munum halda ykkur áfram upplýstum eftir því sem vinnunni miðar áfram á næstu vikum.
Með baráttukveðju,
Bæjarstjórn Grindavíkur
