27. mars 2026
Opnun íþróttamannvirkja um páskana
Það er sannkölluð páskastemning í íþróttamannvirkjum Grindavíkur þessa dagana. Sundlaugin og líkamsræktin verða opin yfir páskana og úrslitakeppnin í körfunni hefst með stórum leikjum.

Íbúar og gestir eru hvattir til að nýta sér aðstöðuna, hreyfa sig og taka þátt, hvort sem það er í rólegheitum í pottinum eða syngjandi á pöllunum.
Opnunartímar yfir páskana
- Laugardagur 28. mars: kl. 12:00–17:00
- Mánudagur 30. mars: kl. 16:00–20:00
- Miðvikudagur 1. apríl: kl. 16:00–20:00
- Grindavík – Njarðvík (8 liða úrslit Bónus deildar karla) kl. 19:00
- Skírdagur 2. apríl: kl. 16:00–20:00
- Föstudagurinn langi 3. apríl: kl. 16:00–20:00
- Laugardagur 4. apríl: kl. 12:00–17:00
- Grindavík – Valur (8 liða úrslit Bónus deildar kvenna) kl. 16:00
- Páskadagur 5. apríl: kl. 12:00–17:00
- Annar í páskum 6. apríl: kl. 16:00–20:00

