Nýtt áhættumat fyrir Grindavík – Fyrstu niðurstöður kynntar
Forsætisráðuneytið og Grindavíkurbær boða til opins fundar í Gjánni, í Grindavík þriðjudaginn 22. september kl. 20:00.

Á fundinum verða kynntar fyrstu niðurstöður úr vinnu við nýtt áhættumat fyrir Grindavík. Lokið hefur verið við grunnvinnuna: Gagnalíkan, mælikvarða, vinnuferli og lifandi kerfi sem heldur utan um áhættuvísa og mótvægisaðgerðir fyrir Grindavík.
Aðferðafræðin byggir á samráðsferli sem staðið hefur yfir undanfarna mánuði um áhættumiðaða ákvarðanatöku fyrir Grindavík, í þremur þáttum: Öryggi, húsnæði og skólahaldi.
Með þessari vinnu hefur verið lagður grunnur að lifandi áhættumati með 23 áhættuvísum og 150 mótvægisaðgerðum sem snerta daglega tilveru í Grindavík. Markmiðið er að með virkum aðgerðum verði unnt að tryggja öryggi fólks sem dvelur, býr eða starfar í Grindavík, á sambærilegan hátt og í öðrum byggðarlögum sem búa við náttúruvá.
Næsta skref verður síðan opinbert lifandi áhættumat með gagnsæi og rekjanleika, þar sem allir geta séð á hverju ákvarðanir byggja og hvernig niðurstöður eru fengnar.
Fundinum verður streymt.


