Heimildamynd um Tyrkjaránið frumsýnd um helgina
Helgina 17.–18. október fer fram Safnahelgi á Suðurnesjum þar sem fjölmörg söfn bjóða gestum að kynna sér fjölbreyttan safnkost svæðisins.

Kvikan í Grindavík tekur þátt í safnahelginni og verður opin báða dagana frá kl. 13:00 til 16:00.
Heimildamynd um Tyrkjaránið í Grindavík
Í tilefni safnahelgarinnar frumsýnir Minja- og sögufélag Grindavíkur heimildamynd um Tyrkjaránið í Grindavík árið 1627 eftir Adam Nichols og Karl Smára Hreinsson.
Í myndinni er saga þessa örlagaríka atburðar rakin, þegar sjóræningjar frá Salé í Marokkó komu að Grindavík og rændu fólki og verðmætum. Árásin á Grindavík markaði upphaf Tyrkjaránsins á Íslandi árið 1627. Adam og Karl Smári hafa um árabil rannsakað Tyrkjaránið og gefið út fjölmargar bækur um atburðina.
Myndin er um 20 mínútur að lengd og verður sýnd á hálftíma fresti í Kvikunni laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. október, milli kl. 13:00 og 16:00.
Fjölbreytt dagskrá í öllum sveitarfélögum
Safnahelgin er kjörið tækifæri til að heimsækja söfn á Suðurnesjum og kynnast þeirri fjölbreyttu sögu og menningu sem svæðið hefur upp á að bjóða.
Grindavíkurbær hvetur íbúa og gesti til að nýta helgina, heimsækja Kvikuna og önnur söfn á Suðurnesjum.
Nánari upplýsingar og dagskrá safnahelgarinnar má finna á safnahelgi.is.


