Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
16. nóvember 2026

Nið­ur­staða bæj­ar­stjórn­ar um óveru­lega breyt­ingu á Að­al­skipu­lagi Grinda­vík­ur

Végarður við Stamphólsveg – nýtt afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF5)

Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti á 601. fundi sínum þann 27. október 2026 tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2018–2032 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar Végarðs við Stamphólsveg.

Breytingin felur í sér að um 1,1 ha svæði, sem nú er skilgreint sem íþróttasvæði (ÍÞ1) og miðsvæði (M1), verður skilgreint sem nýtt afþreyingar- og ferðamannasvæði (AF5). Markmiðið er að skapa skipulagslegar forsendur fyrir uppbyggingu Végarðs sem sýningar-, fræðslu- og útivistarsvæðis. Breytingin er sett fram á uppdrætti dags. 12. október 2026.

Tillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin tekur gildi þegar auglýsing um hana hefur birst í B-deild Stjórnartíðinda.

Nánari upplýsingar veitir skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar.

Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar

Niðurstaða bæjarstjórnar um óverulega breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur - Grindavíkurbær