Niðurstaða bæjarstjórnar um óveruleg breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar 2018-2032
Breyting á veglínu Norðurljósavegar og gatnamótum hans við Grindavíkurveg.

Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkti á fundi nr. 593 þann 26.02.2026, tillögu að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi Grindavíkur 2018-2032. Um er að ræða breytingu á veglínu Norðurljósavegar ásamt því að gatnamót Norðurljósavegar við Grindavíkurveg verða endurbætt til að bæta umferðaröryggi.
Breytingin felur í sér breytingu á texta í kafla 2.3.1 í greinagerð, breytingu á þéttbýlisuppdrætti aðalskipulagsins og breytingum á töflum 14 og 15 um tengi- og stofnvegi.
Aðalskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar, skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulegar breytingar á aðalskipulagi. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Grindavíkurbæjar.
Skipulagsfulltrúi Grindavíkurbæjar


