Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
14. október 2026

Mark­aðs­könn­un vegna upp­bygg­ingar ferða­þjón­ustu í Hóp­inu

Grindavíkurbær hefur hafið markaðskönnun vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar sýningar- og ferðaþjónustu í Hópinu við Austurveg 3C í Grindavík.

Markmiðið er að kanna áhuga markaðsaðila á verkefninu og afla sjónarmiða sem nýst geta við undirbúning mögulegs útboðs á rekstri starfseminnar.

Hópið var áður knattspyrnuhús sem varð fyrir miklum skemmdum í náttúruhamförunum í Grindavík. Sprunga liggur í gegnum húsið og eru ummerki jarðhræringanna greinileg. Til skoðunar er að nýta húsið og sérstöðu þess til að skapa nýjan áfangastað þar sem gestir gætu kynnt sér náttúruhamfarirnar og áhrif þeirra á Grindavík í öruggu og skipulögðu umhverfi.

Hugmyndir um nýtingu Hópsins tengjast jafnframt áformum um uppbyggingu Végarðs og frekari þróun Grindavíkur sem áfangastaðar ferðamanna. Með verkefnunum skapast tækifæri til að efla ferðaþjónustu, lengja dvöl gesta í bænum og styrkja atvinnulíf og þjónustu.

Hvað er markaðskönnun?

Markaðskönnun er liður í undirbúningi verkefnis þar sem leitað er til fjárfesta og annarra áhugasamra aðila til að kanna áhuga þeirra og afla upplýsinga um mögulegar útfærslur.

Með könnuninni vill Grindavíkurbær meðal annars fá betri mynd af því hvernig standa mætti að uppbyggingu og rekstri starfseminnar, hvaða fjárfestingar gætu verið nauðsynlegar og hvernig samstarfi sveitarfélagsins og rekstraraðila væri best háttað.

Markaðskönnunin er ekki útboð og ekki er verið að óska eftir bindandi tilboðum. Enginn rekstraraðili verður valinn á grundvelli könnunarinnar. Niðurstöðurnar verða nýttar til að meta möguleika verkefnisins og undirbúa næstu skref, meðal annars hugsanlegt útboð.

Áhugasamir aðilar hvattir til þátttöku

Consensa annast markaðskönnunina fyrir hönd Grindavíkurbæjar. Könnunin er opin öllum áhugasömum aðilum og fer fram í rafræna útboðskerfinu TendSign.

Óskað er eftir upplýsingum og sjónarmiðum um mögulegt fyrirkomulag starfseminnar, fjárfestingar, rekstrarforsendur og samstarf við sveitarfélagið.

Skilafrestur er til kl. 12:00 þriðjudaginn 24. nóvember 2026.

Nánari upplýsingar og gögn markaðskönnunarinnar má finna á vef Consensa.