Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
16. október 2026

Líð­an Grind­vík­inga batnar og fleiri búa í bæn­um

Ný könnun Maskínu fyrir forsætisráðuneytið: Sex af hverjum tíu telja raunhæft að búa í Grindavík til lengri tíma 

Líðan og aðlögun Grindvíkinga hefur batnað jafnt og þétt síðustu misseri og fleiri búa nú í bænum en í byrjun árs. Áform um að flytja aftur heim hafa þó lítið breyst og helmingur Grindvíkinga upplifir enn verri andlega heilsu en fyrir rýmingu. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir forsætisráðuneytið dagana 2. til 11. október. Alls svöruðu 1.178 manns, eða um 42% Grindvíkinga 18 ára og eldri sem bjuggu í bænum við rýminguna 10. nóvember 2023. 

Betri líðan og aðlögun 

Nú segja tæp 50% að andleg heilsa þeirra sé verri en fyrir rýmingu. Í könnun Maskínu fyrir Grindavíkurnefnd í desember og janúar var hlutfallið um 60% og í febrúar 2025 var það 66%. Sama þróun sést í líkamlegri heilsu, þar sem 42% segja hana verri samanborið við 51% í janúar. 

Aðlögun að nýjum heimkynnum hefur einnig batnað. Tæp 60% segja að sér hafi gengið vel að aðlagast samfélaginu þar sem þau búa nú, samanborið við 49% í janúar og 41% í febrúar 2025. Um 14% segja að aðlögunin hafi gengið illa. 

Fleiri búa í bænum en flestir sjá sig annars staðar 

15,3% svarenda búa nú í Grindavík, en hlutfallið var um 10% í byrjun árs. Þegar spurt er um framtíðina telja 28,5% líklegt að þau búi í Grindavík eftir eitt ár en helmingur telur það ólíklegt. Áform um að flytja aftur hafa því lítið breyst frá fyrri könnunum, þótt líðan hafi batnað. 

Athygli vekur að 60,2% telja raunhæft að fólk geti búið í Grindavík til lengri tíma, mun fleiri en þeir sem sjá sjálfa sig búa þar. Þegar spurt er hvað hafi helst áhrif á afstöðuna nefna flestir öryggi (30,4%) og húsnæðisaðstæður (21,6%). 

Traust til áhættumatsins tengist þekkingu 

Í könnuninni var í fyrsta sinn spurt um nýtt áhættumat fyrir Grindavík sem kynnt var í september. Tæp 63% hafa kynnt sér matið vel eða að einhverju leyti en 15,7% hafa ekki kynnt sér það. 47,9% bera mikið traust til niðurstaðna matsins, 35,7% hvorki mikið né lítið og 16,4% lítið traust. 43,9% segja að matið hafi gert þau jákvæðari gagnvart búsetu í Grindavík en 9,5% neikvæðari. 

Traustið er mest hjá þeim sem þekkja matið best. 67% þeirra sem kynntu sér það vel bera mikið traust til þess, en 17% þeirra sem hafa ekki kynnt sér það. Þau sem búa í Grindavík treysta matinu best (62,4%). Þau sem bera lítið traust til matsins nefna helst að of mikil óvissa sé enn til staðar. 

Mikill munur eftir þjóðerni 

Áberandi munur er á afstöðu íbúa eftir þjóðerni. 21,7% svarenda af pólskum uppruna bera mikið traust til áhættumatsins samanborið við 53,8% Íslendinga, og 64,4% þeirra telja ólíklegt að þau búi í Grindavík eftir ár. Pólskir svarendur hafa þó kynnt sér matið jafn vel og aðrir og eru almennt ánægðari með upplýsingagjöf um málefni Grindavíkur en aðrir hópar. 

Upplýsingagjöf 

41,8% eru ánægð með upplýsingagjöf um málefni Grindavíkur og 18,5% óánægð. Flestir leita upplýsinga á vef bæjarins og samfélagsmiðlum hans. Þau sem sækja íbúafundi og kynningar bera mest traust til áhættumatsins (71,1%), en innan við fjórðungur nýtir þá leið. 

Eldri kannanir má finna á vef Grindavíkurnefndar.