26. ágúst 2026
Lengri opnun í íþróttamannvirkjum
Opnunartími íþróttamannvirkja lengist í september samhliða aukinni starfsemi í Grindavík.

Meðal annars bætist við morgunopnun fjóra daga vikunnar.
Opnunartími í september verður eftirfarandi:
- Mánudagar: 16:00–21:00
- Þriðjudagar: 8:00–13:00
- Miðvikudagar: 8:00–13:00 og 16:00–21:00
- Fimmtudagar: 8:00–13:00
- Föstudagar: 8:00–13:00
- Laugardagar: 12:00–17:00
Lengri opnunartími kemur til móts við aukna eftirspurn eftir þjónustu í Grindavík, auk þess sem nemendur Grunnskóla Grindavíkur sækja íþróttir og sund í íþróttamannvirkjunum fyrir hádegi.


