Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
25. apríl 2026

Hvern­ig kýs ég ut­an­kjör­fundar?

Sveitarstjórnarkosningar í Grindavík fara fram 16. maí 2026. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hófst 17. apríl.

Kosning utan kjörfundar

Ef kjósendur geta ekki kosið á kjördag er hægt að kjósa utan kjörfundar, hjá sýslumönnum eða erlendis.

Á Höfuðborgarsvæðinu er kosið að Hlíðarsmára 2 í Kópavogi. Opið er kl. 10:00-18:00 dagana 17 apríl - 10 maí. 11 maí til 15 maí er opið kl. 10:00-21:00.

Hjá Sýslumanninum á Suðurnesjum (Reykjanesbæ) er opið kl. 8:30-15:00 til og með 3. maí. Frá og með 4. maí verður opið 8:30-19:00. Opið er á laugardögum kl. 10:00-14:00.

Hvar á ég að kjósa?

Í Grindavík verður kosið í Grunnskólanum við Ásabraut. Kjörskrá liggur frammi á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62. Á vef Þjóðskrár geta kjósendur flett upp hvar þeir eru á kjörskrá.

Kjörstaður í Grindavík verður opinn kl. 9:00-22:00. Komi til þess að ekki verður unnt að vera í Grindavík á kjördag verður kjörstaður að Skógarbraut 945 á Ásbrú.

Á vef landskjörstjórnar má finna frekari upplýsingar um hvernig á að kjósa.

Þarftu aðstoð við kosningu?

Allir kjósendur geta fengið aðstoð við að kjósa og þurfa ekki að gefa neinar ástæður fyrir því. Kjósandi getur komið með eigin aðstoðarmann eða fengið aðstoð frá starfsfólki kosninga.

Á vef landskjörstjórnar má finna frekari upplýsingar fyrir þau sem þurfa aðstoð við kosningu.