Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
18. september 2026

Grunn­skóli Grinda­vík­ur fær snjall­sjón­auka að gjöf

Grunnskóli Grindavíkur fékk á dögunum snjallsjónauka að gjöf frá Reykjanes jarðvangi.

Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri hjá jarðvanginum, afhenti Guðlaugu Erlendsdóttur skólastjóra sjónaukann fyrir hönd skólans.

Sjónaukinn er af gerðinni Seestar S30 Pro og býður upp á fjölbreytta möguleika í náttúrufræði- og vísindakennslu. Með honum er meðal annars hægt að skoða sólina, tunglið, reikistjörnur og önnur fyrirbæri á himninum en einnig nýta hann til náttúruskoðunar, til dæmis til að fylgjast með fuglum og dýrum. Þá er hægt að taka bæði myndir og myndbönd með sjónaukanum.

Gjöfin er hluti af verkefni Reykjanes jarðvangs þar sem allir grunnskólar innan jarðvangsins fá snjallsjónauka að gjöf. Verkefnið er unnið með stuðningi Kadeco og atNorth auk þess sem Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari hefur komið að því og ráðlagt um val á búnaðinum.

Sjónaukarnir eru sérstaklega hugsaðir til þess að auðvelt sé að nýta þá í skólastarfi. Þeir tengjast snjalltækjum og geta því skapað fjölbreytt tækifæri fyrir nemendur til að rannsaka, skoða og skrásetja náttúruna og himingeiminn með lifandi hætti.

Reykjanes jarðvangur hyggst jafnframt, í samstarfi við Sævar Helga, bjóða kennurum upp á námskeið í notkun sjónaukanna. Markmiðið er að búnaðurinn nýtist sem best í náttúrufræði- og vísindakennslu í skólum á svæðinu.

Grindavíkurbær og Grunnskóli Grindavíkur færa Reykjanes jarðvangi, Kadeco, atNorth og Sævari Helga bestu þakkir fyrir veglega og spennandi gjöf sem vonandi á eftir að vekja forvitni og áhuga nemenda á náttúrunni og undrum himingeimsins.