Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
10. apríl 2026

Grinda­vík­ur­nefnd kynn­ir ramma­áætl­un

Grindavíkurnefnd kynnti í dag rammaáætlun um endurreisn Grindavíkur.

Áætlunin er aðgengileg á vef nefndarinnar. Þar segir að í áætluninni sé lögð á öryggi, farsæld íbúa og uppbyggingu samfélagsins til framtíðar. Áætlunin tekur mið af því að náttúruvá er enn til staðar og óvissa ríkir um þróun jarðhræringa. Rammaáætlunin byggir á mati á stöðu mála undir viðvarandi náttúruhamförum og leggur grunn að samstilltu átaki ríkis, sveitarfélaga og samfélagsins alls. Nefndin hefur í vinnu sinni átt samráð og samstarf við fjölmarga hagaðila, s.s. Grindavíkurbæ, ráðuneyti og stofnanir, atvinnulíf, félagasamtök, önnur sveitarfélög, vísindasamfélagið o.fl.