Grindavík vakti athygli á Icefish 2026
Sameiginlegur sýningarbás Grindavíkurbæjar, Grindavíkurhafnar og fjölda grindvískra fyrirtækja dró að sér marga gesti og sýndi þann mikla kraft og samstöðu sem býr í samfélaginu.

Íslenska sjávarútvegssýningin (Icefish 2026) fór fram í Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september og tókst með miklum ágætum. Grindavíkurbær, Grindavíkurhöfn og um 20 fyrirtæki úr Grindavík voru með glæsilegan sameiginlegan sýningarbás þar sem starfsemi fyrirtækjanna og staða samfélagsins í Grindavík var kynnt fyrir gestum sýningarinnar.
Þar gafst einstakt tækifæri til að kynnast fjölbreyttu atvinnulífi Grindavíkur og upplifa um leið þá samstöðu og þann kraft sem einkennir bæjarfélagið.
Fulltrúar fyrirtækjanna og bæjarins stóðu sig með miklum sóma. Þeir tóku á móti gestum, kynntu starfsemi sína og svöruðu fyrirspurnum um bæði atvinnulífið og stöðuna í Grindavík. Þar kom skýrt fram að þrátt fyrir þær áskoranir sem samfélagið hefur gengið í gegnum er drifkrafturinn mikill og framtíðarsýnin kristaltær.
Grindvíkingar hafa alla tíð verið þekktir fyrir að standa þétt saman – jafnt í leik sem starfi. Sú samstaða og samstarfsvilji endurspeglast ekki síður í atvinnulífinu, þar sem fyrirtæki í Grindavík hafa löngum lagt sig fram um að vinna þétt saman og styðja hvert annað.
Þessi mikla samstaða sást vel á Icefish. Sameiginlegur bás Grindavíkur vakti verðskuldaða athygli og dró að sér fjölda gesta allt frá opnun til sýningarloka. Góðan árangur má ekki síst þakka þeim fjölmörgu Grindvíkingum sem komu að hönnun, undirbúningi og uppsetningu básins og lögðu sitt af mörkum til að gera hann eins glæsilegan og eftirtektarverðan og raun bar vitni.
Þátttakan á Icefish 2026 var frábær kynning á fyrirtækjunum og starfsemi þeirra. En þátttaka okkar var líka skýr yfirlýsing um samfélag sem stendur þétt saman, býr yfir miklum mannauði og hefur járnvilja og getu til að horfa fram á veginn.
Grindavíkurbær og Grindavíkurhöfn færa öllum þeim fyrirtækjum og einstaklingum sem tóku þátt og lögðu verkefninu lið bestu þakkir. Grindavík stendur þétt saman, það sást glöggt á Icefish 2026.


