Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
26. júní 2026

Gagn­leg­ur fund­ur með for­sæt­is­ráð­herra um ör­yggi og fram­tíð Grinda­vík­ur

Bæjarstjórn Grindavíkur átti fund með Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, og fylgdarliði hennar fimmtudaginn 25. júní.

Fundurinn var í heildina gagnlegur og þar gafst gott tækifæri til að fara yfir öryggismál í bænum, stöðu húsnæðismála og næstu skref varðandi endurreisn. 

Á fundinum fengu ráðherra og fylgdarlið ítarlega og skýra yfirferð yfir stöðu öryggismála í bænum frá Sigurði Rúnari Karlssyni og Einari Sveini Jónssyni, slökkviliðsstjóra. Þar kom skýrt fram að allar hættur í bænum eru vel þekktar, sprungur eru rammlega afgirtar, fyllt hefur verið upp í hættuleg jarðsig og slökkviliðið sinnir stöðugu eftirliti með girðingum og viðveru. Skilaboð bæjaryfirvalda voru afgerandi: Þegar litið er til þessara miklu mótvægisaðgerða er Grindavík engan veginn hættulegri staður en önnur bæjarfélög. 

Markmið bæjarstjórnar á fundinum var skýrt. Auk þess að kynna þessa sterku stöðu öryggismála var þess krafist að áform um takmarkanir á gistináttasamningum (12 daga reglan) yrðu dregin til baka og að gistisamningar yrðu áfram óbreyttir. Þá var lögð þung áhersla á að endurkaupaáætlun Þórkötlu yrði kynnt samfélaginu sem allra fyrst svo íbúar fái aukinn fyrirsjáanleika. 

Eins og við var að búast gat forsætisráðherra engu lofað um beinar aðgerðir eða afnám á takmörkunum á gistináttasamningum strax á fundinum. Ljósi punktur fundarins fólst hins vegar í mikilli áherslu ráðherra á nýtt og uppfært áhættumat. Það mat er nú unnið í nánu samstarfi og samráði við Grindvíkinga og mun líta dagsins ljós fljótlega í sumar. Forsætisráðherra gerði grein fyrir því að þegar það mat liggur loks fyrir, skapist sá faglegi grunnur sem þarf til þess að skoða megi endurkaupaáætlunina af alvöru og fara yfir gistisamningana að nýju ef þess gerist þörf. 

Bæjarstjórn fagnar því samráði sem nú á sér stað við gerð áhættumatsins og metur fundinn skref í rétta átt. Baráttunni fyrir raunhæfum lausnum, minni óvissu og skýrum valkostum fyrir Grindvíkinga verður þó haldið áfram af fullum þunga á næstu vikum.