Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
7. ágúst 2026

Fyr­ir­komu­lag gisti­s­af­nota óbreytt til 31. októ­ber

Unnið að nýju áhættumati og endurkaupum án takmarkana.

Fasteignafélagið Þórkatla hefur tilkynnt að fyrirkomulag gistiviðauka við hollvinasamninga í Grindavík muni haldast óbreytt næstu tvo mánuði, eða til 31. október næstkomandi. Grindavíkurbær telur þessi ákvörðun eitt öruggt og markvisst skref fram á við og túlkar hana sem svo að allar áætlanir um að takmarka gistiheimild við 12 nætur á mánuði í húsum félagsins hafi með þessu verið lagðar til hliðar.

Í tilkynningu Þórkötlu kemur fram að gistiheimildin verði með óbreyttum hætti á þessu tímabili. Sú staðreynd að tæplega 300 Grindvíkingar eru í dag með virka hollvinasamninga og um 170 með virka gistiheimild sýnir hve rík löngun og þörf er í samfélaginu okkar til að halda ljósunum kveiktum og gæta heimila sinna.

Bæjaryfirvöld hafa fulla trú á því að sú vandaða vinna sem nú á sér stað við gerð nýs, lifandi áhættumats muni leiða til þess að engin þörf verði á takmörkunum af neinu tagi í framtíðinni. Markmið Grindavíkurbæjar er skýrt: Að tryggja íbúum fullt valfrelsi til heimkomu á öruggum grunni án óþarfa hindrana, og að endurkaupaáætlun Þórkötlu verði kynnt samfélaginu sem allra fyrst.

Samstarf og gagnadrifnar ákvarðanir

Pétur G. Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, leggur ríka áherslu á að samstaða og vinnslan á nýju áhættumati sé lykillinn að því að eyða óvissu:

Ákvörðun Þórkötlu um að halda samningum óbreyttum til 31. október er eitt öruggt og markvisst skref fram á við. Við erum að vinna gríðarlega flotta og þétta vinnu með yfirvöldum og Þórkötlu við gerð nýs áhættumats. Þetta verður lifandi og gagnadrifið stjórntæki sem gerir okkur kleift að taka upplýstar og öruggar ákvarðanir um framtíðina. Á sama tíma vinnum við að því að fá endurkaupaáætlun Þórkötlu kynnta og lagða fram fyrir Grindvíkinga sem allra fyrst, svo fólk geti farið að skipuleggja heimkomu sína af alvöru.

Bæjarstjórn Grindavíkur mun fylgjast grannt með næstu skrefum og halda íbúum upplýstum eftir því sem vinnunni miðar áfram á næstu vikum.