Framboðsfrestur rennur út 10. apríl
Minnt er á að skilafrestur framboða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 í Grindavík rennur út kl. 12:00 á hádegi þann 10. apríl 2026.

Tilkynningum um framboð skal skilað á bæjarskrifstofur Grindavíkur eða til formanns kjörstjórnar.
Kjörstjórn vill vekja sérstaka athygli á 39. gr. laga. nr. 112/2021 en þar er kveðið á um fjölda meðmælenda með framboðslistum sem skuli vera að lágmarki 20 og hámarki 40 í Grindavíkurbæ.
Athygli er einnig vakin á því, að einungis er unnt að skila meðmælendalista á pappírsformi.
Kjörstjórn Grindavíkurbæjar:
Kjartan Fr. Adólfsson, formaður
Bryndís Gunnlaugsdóttir
Dóróthea Jónsdóttir

