Ert þú að skipuleggja viðburð um sjómannadagshelgina?
Ert þú að skipuleggja viðburð eða ætlar þú að hafa opið um sjómannadagshelgina? Láttu okkur vita svo við getum birt það í dagskránni á vefnum og samfélagsmiðlum.

Sjómannadeginum verður haldinn hátíðlegur 7. júní og er undirbúningur hátíðahaldanna hafinn.
Ert þú að skipuleggja viðburð eða ætlar að hafa opið yfir helgina? Láttu okkur vita svo við getum sett það inn í dagskrá helgarinnar, kynnt á vefnum og samfélagsmiðlum á netfangið eggert@grindavik.is.
Við hvetjum jafnframt öll til að leggja sitt af mörkum og nýta góðu dagana í maí til að fegra bæinn okkar í aðdraganda hátíðarinnar.


