Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni
4. febrúar 2026

Breyt­ingar á holl­vina­samn­ing­um Þór­kötlu og gisti­við­auki fram­lengd­ur

Þórkatla hefur gert breytingar á hollvinasamningum félagsins og framlengt gildistíma gistiviðauka.

Þórkatla hefur gert breytingar á hollvinasamningum félagsins og framlengt gildistíma gistiviðauka.

Hollvinasamningar, sem áður voru tímabundnir til 12 mánaða, eru nú orðnir ótímabundnir með eins mánaða uppsagnarfresti fyrir báða aðila. Eldri samningar eru framlengdir einhliða og teljast nú ótímabundnir á sama grundvelli.

Jafnframt hefur Þórkatla ákveðið að framlengja gildistíma gistiviðauka við hollvinasamninga til 31. ágúst 2026. Gistiviðaukinn hefur verið í gildi sem tilraunaverkefni frá maí 2025 og hefur aukið viðveru Grindvíkinga í bænum.

Nánari upplýsingar um breytingarnar má finna á vef Þórkötlu.