Grindavíkurbær er á óvissustigi almannavarna. Nánari upplýsingar um náttúruvá og stöðu má nálgast hér : Náttúruvá
Beint í efni
28. maí 2026

Breið sam­staða um sam­starf í nýrri bæj­ar­stjórn

Oddvitar allra flokka í nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur vinna nú sameiginlega að samfélagssáttmála um framtíð Grindavíkur og samstarfi á nýju kjörtímabili.

Vilji allra bæjarfulltrúa stendur til þess að vinna saman að þeim krefjandi en jafnframt spennandi verkefnum sem fram undan eru og leggja grunn að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í Grindavík.

Áhersla er lögð á samstöðu og ábyrgð á tímum þar sem mikið er í húfi fyrir Grindvíkinga og bæjarfélagið.

Gert er ráð fyrir að samstarfssamningur og frekari áherslur nýrrar bæjarstjórnar verði kynntar á næstu dögum.

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar verður haldinn 2. júní næstkomandi.